Fékk nálgunarbann á mann sem hefur áreitt hana og barnið hennar um árabil Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2016 14:54 Í málaskrá lögreglu eru skráð ellefu atvik frá árunum 2010 til 2013 þar sem konan tilkynnti um áreiti mannsins. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að karlmaður skuli sæta nálgunarbanni en hann hefur frá árinu 2010 verið undir grun um að beita barnsmóður sína áreiti, hótunum og ofbeldi. Í málaskrá lögreglu eru skráð ellefu atvik frá árunum 2010 til 2013 þar sem konan tilkynnti slíka háttsemi af hálfu mannsins. Manninum hafði verið vísað úr landi og sætt endurkomubanni á tímabilinu frá 1. mars til 1. mars árið 2015. Þann 7. júní í fyrra tilkynni konan að maðurinn væri staddur á heimili hennar og viðhefði hótanir. Í kjölfar þess var manninum gert að sæta nálgunarbanni gagnvart konunni en það var fellt úr gildi 12. Júní sama ár að því er virðist á þeim forsendum að aðilar hefðu verið í samskiptum eftir að bannið var lagt á. Þann 15. desember í fyrra óskaði konan eftir aðstoð lögreglu þar sem maðurinn væri á heimili hennar og hefði í frammi hótanir, meðal annars um líflát. Þessum ásökunum neitaði maðurinn við skýrslugjöf hjá lögreglu. Tíu dögum síðar, eða 25. desember 2015, tilkynnti konan til lögreglu að maðurinn hefði komið á heimili hennar og beitt hana líkamlegu ofbeldi. Við skýrslutöku neitaði maðurinn slíkum ásökunum en lögreglan tók fram í skýrslu sinni að konan hefði verið með meiðsli á andliti og sýnilegar bólgur í kringum vinstra augað. Niðurstaða Hæstaréttar var sú að ekki væri hægt að vernda friðhelgi konunnar og barnsins hennar öðruvísi en með nálgunarbanni. Gildir það í sex mánuði þar sem maðurinn má ekki koma á eða í námunda við heimili konunnar á svæði sem afmarkast við 50 metra radíus umhverfis heimilið, mælt frá miðju hússins. Jafnframt er lagt bann við því að maðurinn veiti konunni og barninu eftirför, nálgist þau á almannafæri eða setji sig í samband við þau með öðrum hætti.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira