Jeffrey Schwartz, fyrrum nágranni Justin Bieber, hefur kært poppstjörnuna fyrir að kasta eggjum í húsið hans og hrækja á hann.
Atvikið átti sér stað árið 2014 í Calabasas í Kaliforníu en Schwartz heldur því fram að skemmdir hafi orðið á húsinu hans eftir Bieber kastaði eggjum í húsið hans. Því næst hafi Íslandsvinurinn veist að honum og hrækt á Schwartz.
Schwartz heldur því einnig fram að atvikið hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir hann, sérstaklega andlega. Bieber er fluttur úr hverfinu og eru þeir tveir ekki lengur nágrannar.
Bieber var á sínum tíma dæmdur til að sinna fimm daga samfélagsþjónustu og fékk sekt eftir að atvikið kom upp. Nú fer Schwartz fram á skaðabætur.
Nú fer Schwartz fram á skaðabætur en hann starfar sem handritshöfundur í Kaliforníu.
Kærir Justin Bieber fyrir að hafa hrækt á sig
Stefán Árni Pálsson skrifar
