Hjólafantur hjólaði niður hund á Kársnesinu Jakob Bjarnar skrifar 12. júlí 2016 14:17 Stórhættulegur og dónalegur hjólreiðamaður hjólaði Móra hennar Guðnýjar niður nú í hádeginu.
Guðný Gústafsdóttir segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við hjólreiðamann sem hjólaði á hund hennar á göngustíg á Kársnesinu. Maðurinn sýndi af sér einkar fruntalega framgöngu. „Hann koma í fullum skrúða og blússandi ferð hjólaði á hundinn minn á göngustígnum sunnanmegin á Kársnesinu. Stíg sem er fyrst og fremst merktur sem göngustígur. Þar sem allskonar fólk er á ferðinni; börn og fullorðið fólk, fatlaðir og ófatlaðir, fólk með lítil börn og fólk með hunda. Skokkarar og hjólreiðafólk,“ segir Guðný.Gangandi vegfarendur í stórhættu Hún segist nýverið hafa hitt tvo fullorðna menn á sitthvorum göngutúrnum sem hafi nánast verið keyrðir niður af hjólreiðamönnum. „Allt of margt hjólreiðafólk hjólar alltof hratt, ekki með bjöllur, hægir ekki á sér og tekur ekki tillit til annarrar umferðar um stíginn. Sumt hjólreiðafólk ferðast í hópum, leggur allan stíginn undir sig og gefur vel í.“Reiðhjólafólki hefur fjölgað gríðarlega á umliðnum árum og fara um sem þeim hentar.Hjóladóni Atvikið sem Guðný lenti í var í hádeginu í dag. Maðurinn sem hjólaði aftan að henni og yfir hundinn Móra, sem er blendingur, var karl á miðjum aldri, gráhærður, með alskegg og gleraugu. „Hann sá ekkert athugavert við þetta. Þegar ég benti honum á að vera með bjöllu á hjólinu og hægja á sér, þetta væri jú göngustígur, sagði hann mér að fylgjast betur með. Það var sumsé feill við minn útbúnað að vera ekki með augu í hnakkanum?!“ Guðný segir manninn ekki hafa beðist afsökunar og lét sig engu skipta afdrif hundsins. „Þegar ég bað um númerið hans ef hundurinn hefði slasast hnussaði hann og spítti í burtu,“ segir Guðný. Sem sér mest eftir því að hafa ekki verið með símann sinn við höndina, til að taka mynda af þessum hjólareiðafanti. Sem betur fer virðist ætla að reynast í lagi með hundinn, en það er ekki þessum hjólamanni að þakka. Vísir hefur í gegnum tíðina fjallað um svipuð tilvik, þar sem hjólreiðamenn hafa sýnt vítavert gáleysi. Víst er að reiðhjólafólki hefur fjölgað mjög á undanförnum árum.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira