Steve Dillon látinn Birgir Örn Steinarsson skrifar 22. október 2016 17:46 Preacher er af mörgum talin ein besta myndasögusería allra tíma, hún er nú orðin að vinsælli sjónvarpsseríu. Vísir
Teiknarinn Steve Dillon sem er aðdáendum myndasagna vel kunnur er látinn. Hann var aðeins 54 ára að aldri.Dillon er líklegast þekktastur fyrir að hafa teiknað myndasögurnar um Preacher sem nýlega hafa verið gerðar að samnefndri sjónvarpsþáttaseríu. Dillon teiknaði einnig myndasögurnar um Hellblazer sem fjalla um galdramanninn John Constantine sem leikarinn Keanu Reeves lék í kvikmynd. Tilkynnt var um andlát Steve á Twitter en það var bróðir hans sem staðfesti fregnirnar að lokum með tísti. Dillon lést í New York þar sem hann hafði búið og starfað í rúma tvo áratugi. Ekki er vitað hvert banamein hans var.Steve Dillon var ein þekktasti myndasöguteiknari Breta.Vísir/ATPEinn af þeim bestuSteve Dillon var breskur, fæddur og uppalinn í Luton. Hann skaust fyrst inn á sjónarsviðið með myndasöguseríunni 2000 A.D. Eftir það hóf hann fljótlega samstarf við írska höfundinn Garth Ennis en saman sköpuðu þeir persónurnar fyrir Preacher sem er af mörgum talin vera ein besta myndasögusería allra tíma.Preacher myndasöguseríunni lauk árið 2000 og var alltaf búist við því að verkið yrði kvikmyndað. Rétturinn á sögunni flakkaði á milli kvikmyndavera í mörg ár áður en gamanleikarinn Seth Rogan fékk það í hendur og ákvað að betra væri að gera sjónvarpsþáttaseríu úr sögunni þar sem hún er löng og viðamikil. Sagan fjallar um prestinn Jessie Custer sem verður andsetinn af afkvæmi djöfuls og engils. Hann fær krafta sem gera honum kleift að skipa hverjum sem er að gera hvað sem er. Hann missir trúna á guð almáttugan sem hefur yfirgefið sæti sitt á himnum og ákveður að leita hann uppi og nota krafta sína til þess að láta hann svara til saka. Með honum í för eru írska vampíran Cassidy og hin byssuglaða Tulip sem er fyrrum ástkona prestsins. Fyrsta sjónvarpsserían af Preacher kom út á þessu ári og skartar þeim Dominic Cooper, Joseph Gilgun og Ruth Negga. Serían fór vel af stað í áhorfi og nú standa yfir tökur á annarri seríu.Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr sjónvarpsþáttunum vinsælu.
Menning Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Sjá meira