Þrír skólar fyrstu Réttindaskólar UNICEF Atli Ísleifsson skrifar 19. ágúst 2016 11:39 Skólastjóri Laugarnesskóla, skólastjóri Laugalækjarskóla, forstöðumaður Kringlumýrar, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og skólastjóri Flataskóla undirrita samkomulagið í gær. Mynd/UNICEF
Flataskóli, Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli verða fyrstu Réttindaskólar UNICEF hér á landi, en samkomulag þess efnis var undirritað í gær. Í tilkynningu frá UNICEF segir að Réttindaskólar séu alþjóðlegt vottunarverkefni sem sýnt hafi mikinn árangur alþjóðlega. „Þátttökuskólarnir leggja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til grundvallar í öllu sínu starfi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. Með verkefninu er skapaður rammi utan um þau markmið sem koma fram í aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, jafnrétti og lýðræði.Góð reynsla í þúsundum skóla í öðrum löndum Réttindaskólar voru upphaflega þróaðir af UNICEF í Bretlandi og kallast þar Rights Respecting SchoolAward. Í Bretlandi eru í dag ríflega 4.000 Réttindaskólar auk þess sem fjöldi slíkra skóla er nú í Kanada, Þýskalandi, Svíþjóð, Danmörku og Slóveníu. Rannsóknir sem gerðar hafa verið í meira en 1.600 Réttindaskólum hafa sýnt fram á jákvæð áhrif á skólastarf. Dregið hefur úr einelti og ofbeldi í skólunum, nemendum líður betur og þeir sýna meira umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika, starfsánægja kennara hefur aukist umtalsvert, nemendur taka aukinn þátt í skólastarfinu og þeir hafa meira sjálfstraust,“ segir í tilkynningunni.Mikið lagt upp úr mannréttindum og lýðræði Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að ný aðalnámskrá fyrir grunnskóla leggi mikið upp úr mannréttindum og lýðræði. „Frá því að hún var samþykkt höfum við hjá UNICEF á Íslandi fundið fyrir mikilli eftirspurn frá skólum og frístundamiðstöðvum eftir fræðslu og stuðningi við að uppfylla þessi metnaðarfullu markmið. Við erum því spennt að fara af stað með þetta tilraunaverkefni og stolt af því að fá Réttindaskóla til Íslands. Vonir standa til að geta boðið enn fleiri skólum þátttöku næsta vetur,“ segir Bergsteinn. Starfsfólk UNICEF á Íslandi mun á skólaárinu vinna náið með Flataskóla, Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla og frístundamiðstöðvum þeirra að innleiðingu verkefnisins. Nánar má fræðast um verkefnið á heimasíðu UNICEF á Íslandi.
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira