Sveinn Jakobsson jarðfræðingur látinn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. júlí 2016 15:58 Sveinn Jakobsson jarðfræðingur.
Sveinn Jakobsson jarðfræðingur lést síðastliðinn þriðjudag, 12. júlí. Hann fæddist 20. júlí 1939 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Jakob Sveinsson yfirkennari við Austurbæjarskólann og Ingeborg Vaaben Mortensen Sveinsson hjúkrunarkona. Sveinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1960 og hélt þá til Danmerkur til náms í jarðfræði. Hann var við nám í Kaupmannahafnarháskóla frá 1960-1969 og útskrifaðist mag.scient. 1969. Hann hlaut svo doktorsgráðu (dr.scient) frá Kaupmannahafnarháskóla 1980. Að loknu námi 1969 hóf Sveinn störf hjá Náttúrugripasafni Íslands, síðar Náttúrufræðistofnun Íslands, þar sem hann vann mestallan sinn feril. Hann var forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar 1972-1974, 1981-1983 og 1990-1994, og deildarstjóri jarðfræðideildar 1969-1994. Einnig var hann stundakennari í bergfræði við jarðfræðiskor Háskóla íslands. Sveinn tók virkan þátt í ýmsum nefndum og félögum tengdum náttúrufræðum, þar á meðal sat hann í stjórn Surtseyjarfélagsins 1972-2009, í stjórn Norrænu Eldjallastöðvarinnar 1973-1993, var varaforseti í stjórn Ferðafélags Íslands 1980-1987 og formaður fagráðs fyrir Náttúruvísindi og umhverfisvísindi hjá Rannsóknasjóði Íslands 2003-2005. Sérgreinar Sveins voru berg- og steindafræði og á þeim sviðum skilaði hann miklu ævistarfi bæði sem safnmaður og í rannsóknum. Hann jók steinasafn Náttúrufræðistofnunar af mikilli elju með innlendum og erlendum sýnum, en meðal stærstu rannsóknaverkefna hans, sem hann fylgdi eftir árum og jafnvel áratugum saman, var bergfræði Reykjanesskaga og Vestur-gosbeltisins, og bergfræði Suðurlands-gosbeltisins, þar með talið Vestmannaeyja. Áratug eftir lok Surtseyjargossins stóð hann ásamt öðrum fyrir borun gegnum gjóskuhaug Surtseyjar sem meðal annars leiddi í ljós að myndun móbergs úr basaltgleri er ferli sem nánast er lokahnykkur af gosinu sjálfu. Jafnframt fann hann í glufum í kólnandi hraunum Surtseyjar og Eldfells fjölda skammlífra steinda sem sumar voru nýjar uppgötvanir. Rannsóknir Sveins einkenndust af mikilli nákvæmni og þrautseigju, enda hafa niðurstöður þeirra staðist að mati kunnáttumanna. Sveinn lætur eftir sig þrjár dætur, Huldu Þóru, yfirmann áætlanagerðar við Aberdeen-háskóla í Skotlandi, Thordis Hofdahl, grunnskólakennara, og Elisabeth Hofdahl, menntaskólakennara, sem báðar eru búsettar í Kaupmannahöfn, og fimm barnabörn.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira