Eins og ef vinsælasti staðurinn eignaðist barn Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 17. ágúst 2016 09:00 Guðmundur og Unnar Helgi hafa ekki áhyggjur af því að skemmtistaðareksturinn muni hafa áhrif á vináttuna. Vísir/Stefán
Unnar Helgi Daníelsson Beck og Guðmundur Hilmar Tómasson hafa verið bestu vinir frá því í fyrsta bekk og demba sér nú á bólakaf saman í rekstur á skemmtistað. Þeir félagar taka nú við rekstri skemmtistaðarins Tivoli sem starfræktur er í sama húsnæði og skemmtistaðurinn Dolly var þegar hann var og hét. Þeir félagar munu taka yfir reksturinn og ráðast í ýmsar breytingar en hafa þó ákveðið að halda nafni staðarins óbreyttu. „Þetta er geggjað nafn, alþjóðlegt og orðið tívolí vekur alltaf spennu og gleði,“ segir Guðmundur og bætir við að stefnan sé sett á að vekja staðinn til lífsins. Líkt og áður sagði hafa Guðmundur og Unnar Helgi verið vinir um áralangt skeið og þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir fara út í rekstur á fyrirtæki saman þar sem þeir byrjuðu með ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Rocks saman árið 2009. Hvorugur þeirra hefur setið auðum höndum síðan en Unnar Helgi á pítsustaðinn Ugly auk skemmtistaðarins Dúfnahóla 10 ásamt fleirum og Guðmundur hefur lagt stund á Creative Branding and Art Direction í Barcelona. Staðurinn verður að einhverju leyti tvískiptur, á efri hæðinni verður skemmtistaður og á hinni neðri eins konar kokteilstofa. Með haustinu stendur til að hafa staðinn opinn sem kaffihús á daginn. Þeir Guðmundur og Unnar eru ófáanlegir til þess að miða staðinn við aðra skemmtistaði sem þegar eru í miðbænum og segja tónlistarstefnuna verða það besta úr öllum áttum. „Þetta verður eins og vinsælasti skemmtistaðurinn í Reykjavík hafi eignast barn.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 17. ágúst.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fleiri fréttir Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Sjá meira