Ríkissaksóknari blankur í byrjun árs Snærós Sindradóttir skrifar 22. janúar 2016 06:00 Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Embætti ríkissaksóknara vantar hátt í þrjátíu milljónir króna til að geta staðið undir verkefnum embættisins í ár. Þetta er mat Sigríðar Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara. Um áramótin færðist ákæruvald ríkissaksóknara í sakamálum til nýs embættis héraðssaksóknara. Við tilfærsluna fækkaði ákæruverkefnum ríkissaksóknara en á móti jókst eftirlitshlutverk embættisins. Embættið fer enn með saksókn í málum sem rata til Hæstaréttar auk þess sem nú er hægt að kæra niðurfellingu kynferðisbrota, eða annarra ofbeldisbrota, til ríkissaksóknara. „Það má sjá fyrir sér að það verði hundrað mál eða meira á ári. Miðað við þá fjölgun sem er í kynferðisbrotamálum og að það er tiltölulega há niðurfellingaprósenta þar,“ segir Sigríður. Hún segir að breytingarnar hafi átt að stuðla að því að styrkja og efla embætti Ríkissaksóknara. „En við fáum minna fjármagn en við vorum með sem hefur leitt til þess að það hefur fækkað um þrjá ákærendur hjá mér. Auðvitað er gott að þessir þrír fóru yfir til héraðssaksóknara en það er ekki þar með sagt að ég geti misst þrjú stöðugildi. Svo var embættið að flytja, sem kostaði einhverjar milljónir sem við áttum ekki til. Við fengum ekki viðbótarfjárveitingu út af því.“ Sigríður segir að þá sé málahalli frá síðasta ári að þvælast fyrir embættinu en um hundrað mál urðu eftir hjá Ríkissaksóknara við breytinguna. „Það er vond staða að vera fáliðaður við upphaf nýs kerfis. Við vonum það besta en það hefði verið betra ef það hefði verið aðeins betur gefið í. Það er margt sem við höfum ekki sinnt hingað til svo sem tölfræði og alþjóðleg samskipti. Það kostar peninga.“
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sjá meira