Götulokanir og dagskrá á 17. júní í Reykjavík Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. júní 2016 13:46 Götulokanir verða í 17. júní sem fyrr. Vísir/Daníel/17juni.is
Götulokanir í miðbænum á Þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga verða minni en undanfarin ár og einskorðast við nágrenni Austurvallar fyrir hádegi en nágrenni Tjarnarinnar síðdegis. Upplýsingagjöf í tengslum við hátíðina er með besta móti en finna má allar helstu upplýsingar á 17juni.is. Morgunlokanir verða á milli 9 og 12 í kringum Austurvöll vegna árlegrar morgunathafnar þar sem fjallkonan kemur fram meðal annarra. Göturnar Skólabrú, Kirkjustræti og Templarasund verða lokaðar. Um kl. 12 fer skrúðganga um Kirkjustræti og Suðurgötu í Hólavallakirkjugarð.Hér má sjá götulokanir á milli 9 og 12.Vísir/17juniFrá hádegi taka við víðtækari götulokanir. Þá er götum í kringum Tjörnina í miðbæ Reykjavíkur lokað vegna fjölskyldudagskrár á tjarnarsvæðinu. Nokkrar götur verða alveg lokaðar, en það eru Fríkirkjuvegur, Sóleyjargata, Bjarkargata, Tjarnargata og Skothúsvegur. Þá verða nokkrar götur lokaðar að hluta en Skálholtsstígur verður lokaður fyrir neðan Laufásveg. Bragagata lokuð fyrir neðan Fjólugötu og Fjólugata lokuð norðan við Bragagötu. „Kl. 12-13:30 geta orðið truflanir á umferð á Laugavegi og í Lækjargötu vegna skrúðgangna og aksturs fornbíla,“ segir á upplýsingasíðu 17. júní.Hér má sjá götulokanir eftir hádegi.Vísir/17juni„Skipulagt hátíðarsvæði er Kvosin þar á meðal Austurvöllur, Kirkjustræti, Templarasund og Tjarnargarðar Umferð er takmörkuð um þessi svæði og torgsala er óheimil án leyfis. Umsjón með dagskrá þjóðhátíðar í Reykjavík hefur þjóðhátíðarnefnd á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur en Hitt Húsið sér um framkvæmdina,“ segir jafnframt.Hefðbundin dagskráKl. 10:00: Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík Kl.10:15: Guðsþjónusta í Dómkirkjunni Kl. 11:10: Athöfn á Austurvelli Kl. 11:50: Skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu Kl. 12:15 – 16: Akstur fornbíla og sýningar Hópakstur Fornbílaklúbbsins og sýning við Hörpu Hópakstur Krúsers og sýning á Skothúsvegi. Kl. 13:00: Skrúðgöngur Skátar leiða skrúðgöngu frá Hlemmi niður Laugaveg og í Hljómskálagarð. Lúðrasveit verkalýðsins og lúðrasveitin Svanur leika Skátar leiða skrúðgöngu frá Hagatorgi í Hljómskálagarð. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Þá verður Þjóðhátíðardagskrá á Tjarnarsvæði og í Hörpu.Hér má nálgast dagskrá Þjóðhátíðar 2016 í heild sinni. Nánari upplýsingar má sjá á 17juni.is.Uppfært 14.40: Í fyrri útgáfu fréttarinnar kom fram að götulokanir væru með sambærilegum hætti og undanfarin ár. Hið rétta er að þær eru minni í ár en áður. Beðist er velvirðingar á þessu.
Tengdar fréttir 19. júní gæti orðið frídagur í stað 17. júní 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna er 19. júní. Þjóðhátíðardagurinn gæti vikið sem frídagur í ár sökum þess. 21. janúar 2015 07:15 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira
19. júní gæti orðið frídagur í stað 17. júní 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna er 19. júní. Þjóðhátíðardagurinn gæti vikið sem frídagur í ár sökum þess. 21. janúar 2015 07:15