Ákvörðun ógilt og vatnstaka í Vatnsendakrikum í umhverfismat Garðar Örn Úlfarsson skrifar 22. desember 2016 07:00 Vatnsvinnslu Hafnfirðinga í Kaldárbotnum var jafnvel talið ógnað af vatnstöku Kópavogs og Reykjavíkur í Vatnsendakrika. vísir/vilhelm
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um að aukin vatnsvinnsla Orkuveitu Reykjavíkur í Vatnsendakrikum skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum hefur verið felld úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Orkuveitan kynnti Skipulagsstofnun í júní 2014 áform um að auka vatnsvinnslu í Vatnsendakrikum í áföngum frá 190 lítrum á sekúndu upp í 300 lítra á sekúndu árið 2030. Samhliða sótti Vatnsveita Kópavogs um að auka sína vatnstöku í Vatnsendakrikum úr 210 lítrum á sekúndu í 350 lítra á sekúndu Skipulagsstofnun kvað upp úr með að framkvæmdirnar væru metnar hvor í sínu lagi og þyrftu ekki að fara í umhverfismat. Hafnarfjarðarbær taldi framkvæmdina eiga að fara í mat á umhverfisáhrifum og kærði ákvörðun Skipulagsstofnunar. Bentu Hafnfirðingar á að á sömu skoðun væru Reykjavíkurborg, Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Orkustofnun og Umhverfisstofnun. Aukin vinnsla vatns í Vatnsendakrikum gæti haft áhrif á vatnsvinnslu Hafnarfjarðar í Kaldárbotnum. „Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekki beri einungis að líta til stakra framkvæmda að þessu leyti, heldur verði jafnframt að huga að samhengi þeirra við framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað og fyrirhugaðar eru á sama svæði, óháð því hvort um einn eða fleiri framkvæmdaraðila er að ræða,“ segir í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. „Að hafinni vinnslu beggja framkvæmdaraðila yrði samanlagt magn vatnstöku tæplega helmingi meira en matsskylt er. Að teknu tilliti til fyrri vinnslu Orkuveitu Reykjavíkur að auki er um ríflega tvöfalt magn vatnsvinnslu að ræða miðað við þau tölulegu viðmið sem lögð eru til grundvallar matsskyldu,“ segir úrskurðarnefndin. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira