Folald ársins veit ekki hvort það er hundur eða maður Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 24. október 2016 22:30
Folaldið Von á sér einstaka sögu því það veit ekki hvort það er hundur eða maður. Von fannst í vor móðurlaus en bjargaði sér með því að sjúga mjólkurkýr. Þá er litur Vonar mjög sérstakur því hún er hjálmskjótt og glaseyg með alhvítt höfuð. Von er folald ársins 2016 og býr á Ártúni í Rangarárvallasýslu. Bændablaðið, í samvinnu við litasérfræðing búfjár, Pál Imsland, valdi Von folald ársins. Saga hennar er mjög sérstök. „Við fundum hana illa til hafða í kringum 20. maí. Þá hafði hún flækkst frá móðir sinni. Við tókum hana heim en vissum ekki hvað við ættum að gera. Mér datt í hug að láta hana sjúga kú í fjósinu og það gekk strax upp. Hún stendur sig mjög vel en veit ekki alveg hvort hún er maður eða hundur, allavega ekki hross,“ segir Halla Bjarnadóttir, bóndi á Ártúni. „Hún hefur lítil sem engin samskipti við önnur hross og líður best með hundinum og okkur. Henni finnst heimasætan skemmtileg,“ segir Halla. En af hverju vill Von ekki lifa lífi hestsins og vera innan um hrossin á bænum? „Hugsanlega vegna þess að ég fékk hana undir fósturmóður og hún var vond við hana. Hún beit hana og vildi hana ekki. Það er hugsanlega ástæðan fyrir því að hún er hrædd við önnur hross.“ Eitt folald í Ártúni gengur undir tveimur merum, önnur þeirra er líklega mamma Vonar en Halla segir að þær munu ekki ná saman úr þessu.
Mest lesið Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Innlent Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Skammdegið víkur með hækkandi sól Innlent „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Innlent Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Erlent Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Innlent „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Innlent Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Innlent Fleiri fréttir Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Skammdegið víkur með hækkandi sól Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Þetta skýrir mögnuðu norðurljósin „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Gengið ágætlega að slökkva og kalla fólk til baka Kvöldfréttir: Í beinni frá Gufunesi Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Reyna aftur að fá Helga Bjart á bak við lás og slá Niðurstöður samræmdra prófa í vor verði opinberaðar Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Mátti skjóta hund vegna viðbúins fjárhagslegs tjóns Loka lauginni vegna veðurs Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Funda um Evrópumálin „fjarri kastljósi fjölmiðla“ Ásdís Halla og Erna Kristín skiptast á ráðuneytum Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Vonskuveður víða um land og óvissustig í gildi Íslenskum ríkisborgurum fjölgaði fimmtán sinnum meira en erlendum Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Bálhvasst á Austfjörðum og óvissustig vegna snjóflóðahættu Maður ársins og slökkviliðið brugðust við vegna álftar sem fraus föst Þrjár vikur í fyrsta gjalddaga og 15% eiga eftir að skrá kílómetrastöðu Fengu ekki réttargæslumann þrátt fyrir grun um ofbeldi á leikskólanum „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Sturla Böðvarsson er látinn Sjá meira