Hjartaáföllum fjölgaði hjá körlum á skattlausa árinu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. júlí 2016 19:15
Hjartaáföllum fjölgaði hjá íslenskum miðaldra karlmönnum á skattlausa árinu árið 1987. Þetta sýna niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar sem birt var á dögunum. Árið 1987 var skattkerfinu breytt á Íslandi en tekjuskattur var afnuminn af tekjum fólks það ár. Margir unnu því meira en fyrri ár til að græða sem mest enda var næga vinnu að fá. Íslenskir vísindamenn hafa síðastliðin sex ár rannsakað hvort að líkur á hjartaáföllum hafi aukist á þessu skattlausa ári. Vísindamennirnir fjórir þau Þórhildur Ólafsdóttir, doktorsnemi við hagfræðideild Háskóla Íslands, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við hagfræðideildina, Birgir Hrafnkelsson, prófessor við raunvísindadeild skólans og Guðmundur Þorgeirsson, prófessor við læknadeild skólans birtu á dögunum niðurstöður sínar í Journal of Health Economics einu virtasta vísindatímariti heims á sviði heilsuhagfræði. „Rannsóknir erlendis frá, frá Bandaríkjunum og Evrópu, svona frá síðustu aldamótum sérstaklega benda til þess að í uppsveiflum að þá aukist bæði dánartíðni vegna hjartaáfalla og mögulega líkur á hjartaáföllum,“ segir Þórhildur Ólafsdóttir doktorsnemi við hagfræðideild Háskóla Íslands. Þórhildur segir skattlausa árið í raun hafa verið náttúrulega tilraun um aukningu á vinnuframboði og því einstakt tækifæri til að rannsaka þetta. „Við erum að skoða þá upplýsingar úr skattskrám og hjartaáfallaskrám yfir ellefu ára tímabil. Þar sem við erum með sem sagt fimm ár fyrir skattlausa árið og svo fimm ár á eftir,“ segir Þórhildur. Niðurstöðurnar sýna að hjartaáföllum fjölgaði hjá íslenskum körlum á aldrinum 45-64 ára á skattlausa árinu og árinu þar á eftir. Í ljós kom að 24% aukning, frá meðaltalslíkum á hjartaáföllum yfir rannsóknartímabilið, varð árið 1987. Þá varð aukningin 15,6% árið 1988. „Við sjáum að sérstaklega þeir sem voru að auka við sig mest, það er að segja þeir sem að voru sjálfstætt starfandi á þessu tímabili það er að segja karlar, að þeir voru í auknum líkum á sem sagt á því að fá hjartaáfall,“ segir Þórhildur.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira