Óánægja með ákvörðun bæjarstjóra að flytja úr bænum Jóhann K. Jóhannsson skrifar 4. september 2016 10:27 Róbert Ragnarson, bæjarstjóri í Grindavík, og Krisín María Birgisdóttir, forseti bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur er afar ósáttur með ákvörðun bæjarstjóra sveitarfélagsins að flytja frá Grindavík og til höfuðborgarinnar, en áfram starfa sem bæjarstjóri. Forsetinn segir að brottrekstur hafi borið á góma. Róbert Ragnarson, bæjarstjórinn í Grindavík, tilkynnti í síðustu viku að hann hugðist flytja úr sveitarfélaginu og til höfuðborgarinnar. Forseti og varaforseti bæjarstjórnar vilja að bæjarstjóri búi á staðnum en segja að ekki sé hægt að krefja hann um það. Kristín María Birgisdóttir, forseti bæjarstjórnar, segist hafa fengið fréttir af flutningi Róberts nokkru fyrr en í síðustu viku. „Við vorum svo sem ekkert hress með það. Við viljum að bæjarstjórinn búi í Grindavík, en við getum ekki staðið í vegi fyrir að hann flytji. Hann hefur ákveðið að flytja nær sínu fólki. Það breyttust aðstæður hjá honum á kjörtímabilinu þannig að maður reynir að sýna því skilning.“ Skiptar skoðanir eru um brottflutning bæjarstjórans í bæjarfélaginu og sömuleiðis í pólitíkinni. „Fólk hefur náttúrulega skoðanir á málinu og þær eru misjafnar. Svo titringur? Ég skal ekki segja. Við viljum náttúrulega að hann búi í Grindavík.“ Staða Róberts hefur verið rædd innan bæjarstjórnar og í viðtali við Víkurfréttir á föstudag sagði Hjálmar Hallgrímsson, varaforseti bæjarstjórnar, að brottrekstur hafi borið á góma. Kristín María segir að það hafi ekki formlega rætt að skipta um bæjarstjóra. „Staðan hefur að sjálfsögðu verið rædd og bæjarstjórinn hefur verið með í þeirri umræðu. Við ræddum þetta eftir síðasta bæjarstjórnarfund að þetta væri staðan sem væri komin upp. Í Grindavík býr fólk sem vinnur í Reykjavík, þannig að ef fólk getur sinnt starfi sínu án þess að búa á svæðinu þá er það það sem skiptir máli.“Væri hann sáttur að hætta sem bæjarstjóri ef þið færuð fram á það við hann? „Það hefur ekki verið rætt þannig að ég bara veit það ekki. Ég held að hann hafi fullan hug að starfa áfram af þeim krafti sem hann hefur verið að gera sem bæjarstjóri. Hann hefur sinnt starfi sínu mjög vel og hefur verið bæjarstjóri í sex ár og hefur búið í Grindavík í sex ár. En nú eru breyttar aðstæður,“ segir Kristín María.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira