Óska ráðgefandi álits og að saksóknara verði gerð réttarfarssekt Jóhann Óli Eiðsson skrifar 16. desember 2016 07:00 Björn Þorvaldsson í dómsal áður en málflutningur hófst. Vísir/Anton
Verjendur í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis fóru fram á það í gær að óskað yrði eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins varðandi túlkun á ákvæði í lögum um verðbréfaviðskipti. Munnlegur málflutningur um efnið fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Áður hefur verið sakfellt fyrir brot gegn lagagreininni sem rataði í íslensk lög gegnum Evróputilskipun. Telja verjendur að fyrri niðurstöður Hæstaréttar séu á skjön við þann skilning sem lá að baki ákvæðinu og því er óskað eftir ráðgefandi áliti.Verjendur í dómssal í gær þegar Símon Sigvaldason dómari mætti í dómssal.Vísir/Anton BrinkÍ málinu eru Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, ákærðir fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik. Að auki eru þrír fyrrverandi starfsmenn bankans einnig ákærðir. Áður hafa starfsmenn Kaupþings og Landsbankans verið sakfelldir fyrir sams konar brot. Í máli verjenda kom fram að uppi væri réttmætur vafi um fordæmisgildi dómanna meðal annars í ljósi þess að tveir dómenda af fimm í Landsbankamálinu áttu hlutabréf í bankanum. Í ræðu sinni sagði Björn Þorvaldsson saksóknari að Reimari Péturssyni, verjanda Jóhannesar Baldurssonar og formanni Lögmannafélagsins, væri „uppsigað“ við Hæstarétt og með málflutningi sínum vægi hann með „ómaklegum og ómerkilegum“ hætti að dómstólnum. Verjendur brugðust ókvæða við þessum orðum og lét Reimar færa í þingbók að hann færi fram á að Birni yrði gerð réttarfarssekt sökum þessa ummæla. Úrskurður varðandi ráðgefandi álitið verður kveðinn upp í komandi viku.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira