Átta frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins eyddu meira en milljón í prófkjörsbaráttu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 16. desember 2016 16:15 Fjórtán frambjóðendur í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins hafa nú skilað útdráttum úr uppgjörum vegna kostnaðar við prófkjörsbaráttuna til Ríkisendurskoðunar. Myndvinnsla/Garðar
Fjórtán frambjóðendur í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins hafa nú skilað útdráttum úr uppgjörum vegna kostnaðar við prófkjörsbaráttuna til Ríkisendurskoðunar. Samtals kostuðu framboð þeirra fjórtán yfir 21 milljón króna. Átta frambjóðendur eyddu meira en milljón króna í baráttuna um sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins.Styrkur frá ömmu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, fékk framlög upp á rúmlega 3,3 milljónir króna og samtals kostaði prófkjörsbarátta hennar 2.920.010 krónur. Áslaug hlaut bein fjárframlög upp á 27 einstaklingum upp á 1,8 milljónir, framlög í öðrum gæðum upp á 171 þúsund krónur og þá styrkti Elsa Pétursdóttir, amma Áslaugar, hana um 400 þúsund krónur. Auk þess hlaut Áslaug beina styrki frá 6 fyrirtækjum að andvirði 985 þúsund krónum. Fyrirtækin sem styrktu prófkjörsframboð Áslaugar voru Gravitas slf, Fasteignafélagið Hýsill, Aktis, Skipamiðlarinn, Investis og Steiboch-þjónustan. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, varði alls 2.673.604 krónum í prófkjörsframboð sitt og fékk framlög upp á 2.675.271 krónur. 265 þúsund krónur komu í gegnum bein frjáframlög frá sex einstaklingum en alls studdi 31 fyrirtæki framboð Ásmundar fyrir 2,4 milljónir.Styrkti sjálfan sig um tæpa milljón Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður var í prófkjöri í Reykjavík og alls kostaði prófkjörsframboð hans 2.874.241 krónur og hlaut hann framlög fyrir sömu upphæð. Sjálfur varði Guðlaugur Þór 949.241 krónu í prófkjör sitt. Þá hlaut hann 250 þúsund krónur í bein fjárframlög frá þremur einstaklingum og 20 þúsund krónur í öðrum gæðum frá GAP fyrir húsaleigu. Þá fékk hann styrki frá 11 fyrirtækjum fyrir alls 1.655.000 krónur. Fyrirtækin sem studdu prófkjörsbaráttu Guðlaugs Þórs voru Bláa Lónið, Brekkuhús, Gúmmísteypa Þ. Lárusson, ÍSAM, LK slf, Menja, Profirma, Rauðisandur, Selta, Thule Insvestments og V.S Investment. Hildur Sverrisdóttir varaþingmaður varði alls 1,2 milljónum í prófkjörsframboð sitt og hlaut framlög fyrir 1,3 milljónir. Sjálf varði hún 300 þúsund krónum í framboðið og hlaut bein fjárframlög frá 9 einstaklingum fyrir samtals 306 þúsund krónur. Þá fékk hún 700 þúsund krónur í styrk frá 5 fyrirtækjum; Frumherja, NL lögfræðiþjónustu slf, Lexíu, 101 BarCo og Fyrsta Stoð slf.Engin framlög frá einstaklingum Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hlaut framlög fyrir alls 1.375.000 krónur og eyddi sömu upphæð í prófkjöri flokksins. Sjálfur varði hann 75 þúsund krónum í baráttuna, en hlaut engin bein framlög frá einstaklingum. Sex fyrirtæki styrktu framboð Jóns um alls 1,3 milljónir króna. Fyrirtækin sem styrktu Jón voru Bjallaból, Fornubúðir, Kaupfélag Skagfirðinga, Hraðfrystihús Hellisands, Tak – Malbik og Verkfræðistofa Gunnvarar. Prófkjörsframboð Óla Björns Kárasonar, þingmanns Suðvesturkjördæmis, kostaði alls 1.542.763 krónur og hlaut Óli Björn framlög fyrir sömu upphæð. Sjálfur varði hann 912.763 krónum í prófkjörið og hlaut bein fjárframlög frá 2 einstaklingum fyrir 30 þúsund krónur. Þá hlaut hann styrki frá 3 fyrirtækjum fyrir alls 600.000 krónur. Fyrirtækin sem styrktu Óla Björn voru Stilling, Sigla og Þjóðmál.Tæpar tvær milljónir og afþakkaði sæti Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum þingmaður og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hlaut samtals framlög fyrir 1.975.000 krónur og kostaði prófkjör hennar 1.974.849 krónur. Ragnheiður Elín hlaut bein fjárframlög frá fimm einstaklingum fyrir alls 585 þúsund krónur og styrki frá 13 fyrirtækjum fyrir alls 1.390.000 krónur. Fyrirtækin sem styrktu Ragnheiði Elínu voru Humarsalan, Sæmark-Sjávarafurðir, Lýsi, Dalborg, PMH Consulting slf, Styrmir, Hótel Keflavík, Bílaleigan Geysir, Bláa Lónið, Cargo flutningar, HS Orka, Klapparás og Saltver. Ragnheiður Elín hætti í stjórnmálum eftir að hún hafnaði í fjórða sæti lista flokksins í Suðurkjördæmi. Prófkjörsbarátta Sigríðar Á Andersen þingkonu kostaði 1.553.966 krónur og fékk hún framlög fyrir samtals sömu upphæð. Sjálf varði Sigríoður 10.966 krónum í framboðið og hlaut bein fjárframlög frá einstaklingum fyrir 693 þúsund krónur. Þá hlaut hún beina styrki frá fjórum fyrirtækjum fyrir alls 850 þúsund krónur. Fyrirtækin sem styrktu Sigríði voru Ursus, Ísól, Hardon og HIBB Holding. Hinir frambjóðendurnir fimm sem skilað hafa útdrætti úr uppgjöri vegna þáttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins eru Teitur Björn Einarsson, Vilhjálmur Árnason, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Karen Elísabet Halldórsdóttir og Elín Hirst. 69 frambjóðendur í prófkjörum Pírata hafa skilað yfirlýsingu þess efnis að þeir hafi eytt innan við 400 þúsund krónum í sín framboð og fjórir frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa skilað samskonar yfirlýsingu.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira