Rannsókn lögreglu á eldsupptökum á Seljavegi hefst eftir hádegi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. desember 2016 11:35 Eldurinn kviknaði í risíbúð í fjölbýlishúsi við Seljaveg í nótt. vísir/gva
Tæknideild lögreglu mun ekki hefja rannsókn á eldsupptökum í risíbúð við Seljaveg sem gjöreyðilagðist í eldsvoða í nótt fyrr en eftir hádegi. Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá kertaskreytingu en eldsupptök fást ekki staðfest fyrr en lögregla hefur lokið rannsókn á vettvangi. Ekki er hægt að fara inn í íbúðina til að hefja rannsókn fyrr þar sem kólna þarf í glæðum fyrst. Móðir og dóttir sluppu naumlega út úr brennandi íbúðinni um klukkan hálf fjögur í nótt. Eldurinn virðist hafa magnast hratt og voru rúður farnar að springa þegar slökkviliðið kom á vettvang, en fólk úr öðrum íbúðum hússins hafði þá náð að forða sér út. Mæðgurnar voru fluttar á slysadeild en þær munu ekki hafa orðið fyrir reykeitrun. Risið var einangrað með torfi og var því mikill eldsmatur í einangruninni. Það tók því talsverðan tíma og þurfti víða að rífa frá glæðum en slökkvistarfi lauk um klukkan korter yfir fimm. Íbúar í öðrum íbúðum fengu þá að snúa til síns heima. Eins og sést á myndbandinu hér að neðan, sem birt var á vef Stundarinnar, sést vel hversu mikill eldur var í íbúðinni en eldtungurnar standa upp úr þaki hússins.
Tengdar fréttir Sluppu naumlega úr brennandi íbúð Mæðgur sluppu naumlega út úr brennandi risíbúð í sambýlishúsi við Seljaveg í Reykjavík um klukkan hálf fjögur í nótt. Eldurinn virðist hafa magnast hratt og voru rúður farnar að springa út þegar slökkviliðið kom á vettvang, en þá hafði fólk úr öðrum íbúðum hússins forðað sér út. 19. desember 2016 07:23 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Fleiri fréttir Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Sjá meira
Sluppu naumlega úr brennandi íbúð Mæðgur sluppu naumlega út úr brennandi risíbúð í sambýlishúsi við Seljaveg í Reykjavík um klukkan hálf fjögur í nótt. Eldurinn virðist hafa magnast hratt og voru rúður farnar að springa út þegar slökkviliðið kom á vettvang, en þá hafði fólk úr öðrum íbúðum hússins forðað sér út. 19. desember 2016 07:23