Fallegur, ómstríður og dansandi konsert Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 1. desember 2016 10:15 Elfa Rún er hvergi bangin þó hún hafi ekki áður spilað þennan fiðlukonsert með sinfóníuhljómsveit. Einu sinni verður allt fyrst. Vísir/GVA „
Þessi Bach fiðlukonsert er vel þekktur þó ég hafi ekki spilað hann jafn oft og hina. Reyndar bara tvisvar áður, fyrst í litlum bæ í Pýreneafjöllunum í Frakklandi og síðara skiptið í Ósló í Noregi. Í báðum tilfellum voru það allt öðru vísi tónleikar en þessir. Í Frakklandi var ég með barokksveit og í Noregi var það lítil kammersveit sem ég leiddi sjálf. Nú er ég með Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir Elfa Rún Kristinsdóttir um Fiðlukonsert í E-dúr eftir Bach sem hún leikur einleik í á aðventutónleikum Sinfóníunnar í kvöld í Hörpu. Tvö verk eftir Mozart ramma inn efnisskrá tónleikanna, fjörmikill forleikur að Brúðkaupi Fígarós og sinfónía númer 39 sem var ein sú síðasta sem hann samdi. Hamrahlíðarkórarnir koma fram með sveitinni í My heart is inditing, hátíðlegu kórverki eftir Händel sem var samið til flutnings við krýningu Karólínu Bretadrottningar í Westminster Abbey árið 1727. En hvernig vill Elfa Rún lýsa konsertinum sem hún leikur í? „Hann er mjög léttur og bjartur,“ segir hún. „Fallegur og ómstríður annar kafli og dansandi þriðji kafli.“ Hún kveðst hafa verið að hitta stjórnanda sveitarinnar nú, hinn norska, Eivind Aadland, í fyrsta skipti. „Okkur semur prýðilega,“ tekur hún fram glaðlega. Elfa Rún átti heima á Akureyri fyrstu fimm ár ævi sinnar og svo í Reykjavík, uns hún hélt út til Þýskalands í frekara tónlistarnám haustið 2003, þá nýlega útskrifuð úr tónlistardeild Listaháskóla Íslands þar sem hún naut handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og Auðar Hafsteinsdóttur. Síðustu tíu árin hefur hún búið í Berlín og á þar franskan eiginmann sem er sellóleikari. Ekki heyrist á mæli hennar að hún tali ekki íslensku upp á hvern dag. Þó segir hún „ábyggilega eitt og eitt orð týnt“. Hún hefur víða vakið athygli fyrir færni sína í fiðluleik og var meðal annars tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2015. Nýr geisladiskur hennar með partítum meistara Bachs hefur líka fengið afburða góða dóma. Spurð hvort hún sé að spila úti um allan heim svarar Elfa Rún: „Já, mest á meginlandinu. En það kemur alveg fyrir að ég fer til annarra heimsálfa.“ Hún kveðst líka alltaf koma heim af og til, nú tók hún rúmlega ársgamlan son sinn með. „Ég var hér síðast að spila með barokkbandinu Brák austur í Skálholti í sumar og ætla einmitt að spila með því bandi aftur núna á sunnudaginn í Norðurljósum í Hörpu,“ upplýsir hún. Kveðst svo fljúga aftur út á mánudaginn með þann litla. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. desember 2016.
Menning Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Chris Brown á skilorði Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira