Lítil samkeppni meðal ungmenna um milljónastyrki Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 2. desember 2016 06:00 Evrópsk ungmenni við sjálfboðaliðastarf fyrir austan.
Á síðustu þremur árum hefur verkefnið Evrópa unga fólksins, sem er á vegum Evrópusambandsins og er hér á landi undir hatti Ungmennafélags Íslands, styrkt 133 ungmenni um 110 milljónir króna til sjálfboðaliðastarfa í Evrópu. Af þessum 133 ungmennum hafa aðeins um 30 verið íslensk ungmenni sem farið hafa héðan. „Hinir hafa allir verið að koma til Íslands. Það getur verið forgangsmál hjá okkur að styrkja frekar þá sem vilja fara héðan til sjálfboðaliðastarfs í Evrópu en samkeppni um styrki hér hefur því miður ekki verið til staðar. Vegna þess höfum við getað styrkt fleiri af þeim sem vilja koma. Það komast þó færri hingað en vilja,“ segir Anna R. Möller, forstöðumaður Evrópu unga fólksins, EUF.Anna R. Möller, forstöðumaður verkefnisins Evrópa unga fólksins.Sjálfboðaliðastörfin standa yfir í tvo til tólf mánuði og fá styrkþegar greiddar flugferðir, gistingu og uppihald auk dagpeninga. „Íslensku ungmennin hafa farið út um alla Evrópu en sækja helst um að fá að fara til Suður-Evrópu. Mestur áhugi er á að fara til Spánar, Ítalíu og Portúgals,“ greinir Anna frá. Hér á landi hafa sjálfboðaliðar frá Evrópu lagt göngustíga, hreinsað fjörur og starfað fyrir Rauða krossinn svo eitthvað sé nefnt. Í ár hefur verkefnið Evrópa unga fólksins, sem er nú 20 ára, greitt sjálfboðaliðum 50 milljónir króna í styrki en alls er styrkféð í ár 180 milljónir. „Auk sjálfboðaliðastarfsins styrkjum við til dæmis verkefni tengd ungmennaskiptum, þjálfun starfsmanna sem vinna í æskulýðsgeiranum, ráðstefnur og námsheimsóknir auk útgáfu handbóka. Allt miðar þetta að því að efla starf með ungu fólki,“ tekur Anna fram.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira