Hallvarður Einvarðsson látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. desember 2016 14:30 Hallvarður stundaði framhaldsnám í stjórnmálafræði við University of Wisconsin í Madison, Wisconsin, og í þjóðarétti og frönsku við Sorbonne háskóla í París.
Hallvarður Einvarðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, lést 8. desember síðastliðinn. Hann var 85 ára gamall, fæddur í Reykjavík 2. desember 1931, sonur Vigdísar Jóhannsdóttur húsfreyju og Einvarðs Hallvarðssonar starfsmannastjóra Landsbanka Íslands og Seðlabanka Íslands. Hallvarður varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og stundaði laganám við Háskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist sem cand. jur. 1958. Hann stundaði framhaldsnám í stjórnmálafræði við University of Wisconsin í Madison, Wisconsin, og í þjóðarétti og frönsku við Sorbonne háskóla í París. Hann fékk lögmannsréttindi fyrir héraðsdómi 1965, löggildingu til flutnings opinberra mála sama ár og málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti árið 1968. Hann starfaði í varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins frá 1954-1955, en að loknu laganámi gerðist hann fulltrúi hjá borgarfógetanum í Reykjavík. Árið 1961 varð hann fulltrúi hjá saksóknara ríkisins frá stofnun embættisins og aðalfulltrúi þar frá 1963. Hann var skipaður vararíkissaksóknari 1974 og settur saksóknari ríkisins um skeið. Árið 1977 var hann skipaður rannsóknarlögreglustjóri ríkisins frá stofnun þess embættis, en var síðan skipaður ríkissaksóknari 1986. Hann var aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands frá 1973 til 1977, en sinnti einnig stundakennslu eftir það. Hann sat í ýmsum nefndum á vegum hins opinbera, einkum á sviði sakamála, lögreglufræða og skattamála. Þá var hann í stjórnum Sakfræðingafélags Íslands og Lögfræðingafélags Íslands og formaður þeirra um skeið. Hallvarður kvæntist Guðrúnu S. Karlsdóttur árið 1963 og eignuðust þau tvö börn, Elínu Vigdísi og Einar Karl. Eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Magnúsdóttur Kjærnested, kvæntist Hallvarður árið 1984, en börn hennar eru Anna Sigurveig, Ragna, Emil og Sunna.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira