60 milljónir söfnuðust fyrir Stígamót Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. nóvember 2016 16:42 Féð sem safnaðist verður notað til að bæta þjónustuna sem Stígamót veita. Vísir/Daníel
Alls söfnðust 60.386.000 krónur í söfnunarátaki Stígamóta sem hófst þann 11. nóvember síðastliðinn og náði hámarki sínu með söfnunarþætti á Stöð 2 síðastliðið laugardagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stígamót en féð sem safnaðist fer í að bæta þjónustu samtakanna sem þegar eru farin að undirbúa þau verkefni sem ráðast þarf í. Í tilkynningu Stígamóta kemur fram að fjöldi fólks hafi komið að átakinu. Þannig hafi listafólk gefið vinnu sína, Stígamótafólk deildi sögum sínum og sjálfboðaliðar mönnuðu símaverið. „Í tengslum við söfnunina átti sér stað mikil vitundarvakning og fjöldi þeirra sem hafa leitað sér hjálpar síðustu vikur er mun meiri en í meðal árferði. Við erum hrærð og óendanlega þakklát fyrir stuðning ykkar sem gerir okkur kleift að ná til fleiri hópa, þjónusta fleiri staði og auka fræðslu og vitundarvakningu,“ segir í tilkynningu Stígamóta sem sjá má í heild sinni hér að neðan. Þann 18. nóvember sl. létum við á það reyna hvort almenningur, fyrirtæki og stofnanir vildu leggjast á eitt með okkur við að bæta og auka þjónustu Stígamóta. Margir tóku við sér og það söfnuðust 60.386.000 krónur. Hver króna fer í að bæta þjónustuna og við erum þegar farin að undirbúa þau brýnu verkefni sem ráðist verður í. Fjöldi fólks kom að átakinu. Listafólk gaf vinnu sína og Stígamótafólk deildi sögunum sínum. Sjálfboðaliðar mönnuðu símaverið. Auglýsingastofan Pipar vann þrekvirki og samstarfið við starfsfólk 365 miðla gekk mjög vel. Bindi og sokkapar frá forseta Íslands voru seld á uppboði. Dregnir voru út ferðavinningar og fleiri vinningar og eru vinningshafar listaðir upp á heimasíðu Stígamóta www.stigamot.is og á Facebook síðunni okkar. Í tengslum við söfnunina átti sér stað mikil vitundarvakning og fjöldi þeirra sem hafa leitað sér hjálpar síðustu vikur er mun meiri en í meðal árferði. Við erum hrærð og óendanlega þakklát fyrir stuðning ykkar sem gerir okkur kleift að ná til fleiri hópa, þjónusta fleiri staði og auka fræðslu og vitundarvakningu. Takk fyrir stuðninginnStarfsfólk Stígamóta
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Fleiri fréttir „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira