Björgunarsveitir fundu bónda ofkældan og örmagna Gissur Sigurðsson skrifar 24. nóvember 2016 12:07 Bóndinn ætlaði að gá til hrossa í Hlíðardal á Vatnsnesi, en þegar hann kom ekki til baka á tilsettum tíma undir kvöld, voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar. Vísir/Vilhelm
Tveir björgunarsveitarmenn slösuðust við leit að týndum bónda norðan við Hvammstanga í gærkvöldi. Bóndinn fannst ofkældur og örmagna og mátti ekki tæpara standa að koma honum til bjargar. Bóndinn ætlaði að gá til hrossa í Hlíðardal á Vatnsnesi, en þegar hann kom ekki til baka á tilsettum tíma undir kvöld, voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar. Einnig var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, en þegar hún kom á svæðið höfðu björgunarmenn nýfundið bóndann og voru að flytja hann í sjúkrabíl, sem ók honum á heilsugæslustöðina á Hvammstanga. Að sögn Gunnars Arnar Jakobssonar, formanns björgunarsveitarinnar Húna, var líkamshiti mannsins kominn niður í 30 gráður þannig að hann var verulega hætt kominn, en er nú á batavegi. Rétt eftir að bóndinn fannst slösuðust svo tveir björgunarsveitarmenn á vélsleða, sem valt skammt frá brú í dalnum. Þar sem þyrlan var hvort eð er á svæðinu var ákveðið að flytja björgunarfólkið, karl og konu, með henni á slysadeild í Reykjavík til aðhlynningar og rannsókna og var karlmaðurinn útskrifaður í morgun, en konan verður jafnvel útskrifuð síðar í dag. Þorsteinn G. Gunnarsson, talsmaður Landsbjargar, segir óalgengt að björgunarmenn meiðist við störf sín. „Ástæðurnar eru kannski einkum vegna þess að við gerum ákveðnar öryggiskröfur til okkar fólk. Í þessum tilvikum er um að ræða þrautþjálfað lið sem hefur gengið í gegnum sína nýliðafræðslu og námskeið og kann vel til verka. Við setjum engan út í alvarlegar og hættulegar aðstæður,” segir Þorsteinn.
Tengdar fréttir Björgunarsveitarmenn slösuðust við leit Tveir björgunarsveitarmenn slösuðust þegar þeir tóku þátt í leit að manni á Vatnsnesi, norðan við Hvammstanga í gærkvöldi. 24. nóvember 2016 07:27 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira
Björgunarsveitarmenn slösuðust við leit Tveir björgunarsveitarmenn slösuðust þegar þeir tóku þátt í leit að manni á Vatnsnesi, norðan við Hvammstanga í gærkvöldi. 24. nóvember 2016 07:27