Lögreglan efld í baráttu við hrelliklám Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 20. október 2016 07:00 Sigríður Björk boðar stefnubreytingu, auknir fjármunir verði settir í rannsókn brota á borð við hrelliklám. vísir/ernir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir baráttuna gegna ofbeldi og kúgun á netinu verða eflda. Lögreglan ætlar til að mynda að taka á hefndarklámi, eða hrelliklámi svokölluðu. Það er opinber birting á kynferðislegu myndefni án samþykkis þess sem er í myndefninu. Emma Holten, dönsk baráttukona gegn slíku klámi, segir mikilvægt að íslensk löggæsla sé efld og þau lagaúrræði sem til eru séu nýtt. Sigríður Björk tekur undir sjónarmið Emmu og segir meira fé verða veitt í vinnu við þessi brot.Emma Holten segir lykilatriði að efla löggæslu og nota þau úrræði sem séu til staðar. Fréttablaðið/Vilhelm„Að sjálfsögðu lítum við þennan málaflokk alvarlegum augum. Fyrst má telja það sem er mikilvægast sem er aukin fræðsla fyrir lögreglumenn og starfsmenn réttarvörslukerfisins til þess að unnt sé að upplýsa þessi brot og koma lögum yfir þá sem þessi brot fremja. Stefnubreytingin felst þá í að auka fjármuni í vinnu við þessi brot.“ Sigríður Björk segir lögregluna þurfa að laga sig að breytingum á afbrotum. „Það er alþekkt að brot taka breytingum og lögregla þarf sífellt að laga sig að breyttum aðstæðum og nýjum brotum. Við erum að reyna að búa svo um hnútana að við eigum sérhæfða starfsmenn og tækjabúnað til að rannsaka brot þar sem tölvur eru notaðar auk sérhæfðs fólks sem sinnir rannsóknum kynferðisbrota,“ segir Sigríður Björk. Þar á hún við stoðdeild löggæslusviðs, tölvurannsóknar- og rafeindadeild og kynferðisbrotadeild. Steinarr Kr. Ómarsson lögreglufulltrúi starfar í tölvurannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Steinarr segir gríðarlega breytingu hafa orðið á málaflokknum síðustu ár. Gagnamagnið hafi aukist og því sé dreift víðar. Sífellt meira krefjandi verði að taka á brotum sem þessum og erfiðustu brotin beinist helst gegn konum og börnum. Sigríður Björk segir að nú séu gerðar ráðstafanir til að samnýta tækjakost, mannskap og þekkingu hjá fjórum embættum til að ná betur utan um rannsóknir glæpa á netinu – lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira