Sjá merki um mansal samhliða auknu vændi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 12. október 2016 06:00 Framboð vændis virðist vera að aukast og grunur um mansal eykst samhliða því. Margir þeirra sem gera sig út í vændi segjast sendir hingað til lands en vilja ekki segja hver sendi þá. vísir/getty
Lögreglumaður segir margt benda til þess að framboð vændis á Íslandi sé að aukast allverulega. Það sést meðal annars á mikilli virkni á auglýsingasíðunni Backpage. Undanfarna viku hafa þrettán einstaklingar á Íslandi auglýst vændisþjónustu á vefsíðunni en lögregla fékk nýlega fregnir af því að þar hafi verið sett upp sérstök undirsíða fyrir Ísland. Síðan er bandarísk og hefur lengi verið umdeild þar í landi þar sem vændisauglýsingar eru algengar á síðunni. Forstjóri Backpage, Carl Ferrer, var handtekinn í Bandaríkjunum í síðustu viku vegna gruns um mansal.Snorri Birgisson, yfirmaður mansalsteymis lögreglunnar„Maður átti ekkert sérstaklega von á að við yrðum með undirsíðu en nú erum við komin með síðu þarna undir þar sem hafa verið virkar auglýsingar og mikið af uppfærslum upp á síðkastið,“ segir Snorri Birgisson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Snorri segir fjölgun ferðamanna sem sækja Ísland heim eiga þátt í auknu framboði vændis. Það sé þó ekki eini þátturinn heldur hafi það einnig áhrif að fleiri Íslendingar flytji heim frá útlöndum sem og að fleiri útlendingar setjist hér að. „Þetta helst í hendur við aukna fólksfjölgun á landinu almennt,“ segir Snorri. Skýrt dæmi um aukninguna segir Snorri mega sjá á vefsíðu sambærilegri við Backpage. Þar hafi verið 34 virkar auglýsingar fyrir ári en nú séu þær rúmlega hundrað. Snorri segir lögreglu hafa brugðist við auglýsingunum með því að ræða við þá einstaklinga sem auglýsi vændi. Upplýsi þá um íslenska löggjöf og að refsivert sé að kaupa vændi. Þá sé þeim einstaklingum boðin aðstoð lögreglu séu þeir fórnarlömb mansals. Þó hafi enginn þegið slíkt boð til þessa. „Eins og staðan er núna þá er framboð á vændi að aukast alveg verulega,“ segir Snorri. Samhliða auknu framboði segir hann lögreglu verða vara við mun fleiri tilfelli þar sem grunur um mansal er til staðar. „Það helst í hendur við framboð á vændi.“ „Þetta eru í svo mörgum tilfellum einstaklingar sem vilja ekki segja okkur neitt. Við sjáum það oft þegar við ræðum við einstaklinga um ástæðu komu þeirra að þeir segjast hafa verið sendir hingað,“ segir Snorri og bætir því við að einstaklingarnir vilji ekki tjá sig um hverjir hafi sent þá. Þá vakni grunur um að ekki sé allt með felldu, viðkomandi bakki út úr samræðunum og gefi ekkert meira upp. „Það er ákveðinn grunur í þessum málum um að þessir einstaklingar séu sendir hingað,“ segir Snorri. Hann segir lögreglu ekki hafa getað brugðist við með því að loka á síðurnar. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segist ekki hafa yfirsýn yfir það hvort fleiri sem gera sig út í vændi leiti til Stígamóta þar sem tölfræði verður ekki tekin saman fyrr en í janúar. Hins vegar segir hún að Stígamót hafi almennt verri yfirsýn eftir að Kristínarhúsi, athvarfi fyrir vændiskonur sem komast vilja úr vændi, var lokað. Þá segir hún það að lögregla finni fyrir auknu framboði ef til vill til marks um að lögregla sinni málaflokknum betur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Mansalstilfellum fjölgar samhliða auknum ferðamannastraumi Aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að opna þurfi umræðuna. 14. júlí 2016 11:30 Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Innlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Fleiri fréttir Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Fékk afa sinn með sér á skólabekk Lögregluaðgerð beint gegn áfengissölu í Kópavogi Boðaður á fund í ráðuneytinu með stuttum fyrirvara Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Sjá meira
Mansalstilfellum fjölgar samhliða auknum ferðamannastraumi Aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að opna þurfi umræðuna. 14. júlí 2016 11:30