Mömmum boðið í kaffi Vera Einarsdóttir skrifar 12. október 2016 11:15 Kolbrún segir alltaf reynt að finna þema sem hreyfir við fólki og vekur athygli. MYND/GVA
Árvekniátak Krabbameinsfélagsins um brjóstakrabbamein hófst með viðhöfn í Kringlunni 29. september og nær hápunkti á bleika daginn 14. október þegar fólk og fyrirtæki sameinast um að minna á átakið með því að klæðast bleiku, skreyta með bleiku eða bjóða upp á bleikar veitingar. Átakið í ár ber yfirskriftina #fyrirmömmu. Krabbameinsfélagið hrindir af stað árvekniátaki um krabbamein tvisvar á ári. Í október snýr það að konum en að körlum í mars. Að hverju sinni er átakinu valin yfirskrift og að þessu sinni er hún #fyrirmömmu.Margir hafa lagt átakinu í ár lið. Hér má sjá þekktar konur og mæður með börnum sínum.„Á hverju áru setjumst við niður og förum yfir hvaða krabbamein er brýnast að minna á. Ástæðan fyrir því að brjóstakrabbamein varð fyrir valinu í ár er sú að reynslan sýnir okkur að við þurfum sífellt að vera að minna á brjóstakrabbameinsleitina. Aðsóknin eykst alltaf í kringum árvekniátökin okkar en dvínar því miður fljótlega eftir að við hættum að minna á. Það er mjög miður því skipulögð leit er öflugasta vopnið í baráttunni gegn brjóstakrabbameini á byrjunarstigi þegar lækning er möguleg,“ segir Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins. Kolbrún segir alltaf reynt að finna þema sem vekur athygli og hreyfir við fólki. „Það er því miður ekki nóg að segja bara; munið að mæta.“ Konur sem fá boð um að koma í skoðun eru á aldrinum 40-69 ára. „Þegar við fórum að hugsa um konur sem hafa greinst á þessum aldri barst talið að því hvað þetta snertir yfirleitt marga og er mikið áfall fyrir fjölskylduna. Margar þessara kvenna eru mæður og/eða eiga mæður og niðurstaðan var sú að mömmur eru svolítið miðjan í þessu. Við eigum það nánast öll sameiginlegt að eiga móður hvort sem hún er með okkur eða ekki og flestir eru ánægðir með og þakklátir fyrir sína mömmu. Okkur fannst þetta flötur sem væri sameinandi og hlýr. Við vildum ýta undir að fólk þakkaði mömmu og um leið að hvetja mömmur og allar konur, ungar sem aldnar til að fara í skoðun,“ segir Kolbrún en konur eru hvattar til að mynda sig með mæðrum sínum eða birta gamlar mæðgna- eða mæðginamyndir og senda á Krabbameinsfélagið sem deilir þeim á samfélagsmiðlum. „Eins hvetjum við fólk til að bjóða mömmu sinni í mömmukaffi á bleika daginn, föstudaginn 14. október. Hvort sem er heim eða á vinnustaðinn.“ Átakinu í ár er þó ekki aðeins ætlað að minna konur á að fara í skoðun heldur er líka verið að safna fyrir nýjum leitartækjum og rennur allt söfnunarfé bleiku slaufunnar óskert til endurnýjunar tækjabúnaðar til skipulagðrar brjóstakrabbameinsleitar. „Samhliða endurnýjun tækja hyggjumst við uppfæra hugbúnaðinn okkar og taka upp nýtt boðunarkerfi. Í dag fá konur bréf á tveggja ára fresti sem hugsanlega endar á ísskápnum en getur líka týnst og gleymst. Með boðunarkerfinu getum við bókað konu í tíma, sent hann til hennar og beðið hana um að breyta ef hún kemst ekki. Kerfið er notað í Svíþjóð og hefur gefið góða raun.“
Mest lesið Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Lífið Fleiri fréttir Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Sjá meira