Búist við mikilli áframhaldandi rigningu á Suður- og Vesturlandi Jakob Bjarnar skrifar 12. október 2016 17:28 Sjaldan hefur verið meira rennsli í Múlakvísl en nú ef frá eru talin jökulhlaup. Áfram er búist við mikilli rigningu.
Miklir vatnavextir eru í ám á Suður- og Vesturlandi samkvæmt tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Mikið hefur rignt á Suður- og Vesturlandi síðan í gær og hafa veðurspár gengið vel eftir. Mest úrkoma hefur mælst í Bláfjöllum, en þar er sólarhringsúrkoma nú um 150 millimetrar. Búast má við mikilli rigningu á Vesturlandi fram yfir miðnætti, en á Suðurlandi má búast við mikilli úrkomu allan næsta sólarhring.Mestu flóðin fyrir vestan Í tilkynningunni kemur fram að mestu flóðin hingað til hafi verið á Barðaströnd, Snæfellsnesi og á svæðinu við Mýrdalsjökul. „Einnig hafa verið miklir vatnavextir í ám í nágrenni Reykjavíkur og er enn að vaxa í þeim. Enn hafa ekki verið mjög miklir vatnavextir á vatnasviði Hvítár og Ölfusár en rennsli þar á eftir að vaxa allan morgundaginn.“ Þá hefur verið mjög mikið rennsli í Soginu. „Rennsli þar er nú um 220 m³/s og er enn að vaxa. Meðalrennsli í Soginu er um 109 m³/s. Hámarkið þar verður líklega á morgun en spáð er mikilli úrkomu þar í nótt.“Rennsli í jökulám Sunnanlands sjaldan verið meiraRennsli Múlakvíslar og Jökulsár á Sólheimasandi hefur líklega sjaldan orðið meira undanfarna áratugi ef frá eru talin jökulhlaup. Í Krossá í Þórsmörk er einnig mjög mikið rennsli og er áin farin að dreifa mikið úr sér. „Enn á eftir að vaxa mjög í ám á svæðinu frá Mýrdalsjökli til Hornafjarðar. Veðurstofan er með vatnhæðarmæli í Djúpá, rennsli þar er nú komið yfir 100 m³/s og vex hratt. Gera má ráð fyrir að rennsli Djúpár og annarra vatnsfalla í Skaftafellssýslu haldi áfram að vaxa þangað til síðdegis á morgun,“ segir jafnframt í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Sjá meira