Innlent

Skrifuðu undir samkomulag í umboðsleysi

Höskuldur Kári Schram skrifar
vísir/vilhelm
Fimm stéttarfélög opinberra starfsmanna gagnrýna samkomulag sem undirritað var í gær um jöfnun lífeyrisréttinda. Félag hjúkrunarfræðinga telur að skrifaði hafi verið undir samkomulagið í umboðsleysi og hefur óskað eftir fundi með fjármálaráðherra vegna málsins.

Samkomulagið felur í veigamiklar breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna en markmiðið er að samræma þau kerfi sem nú eru í gangi hér á landi.

Stéttarfélög lögreglumanna, tollvarða, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og sjúkraliða hafa gert athugasemdir við samkomulagið og nú síðasta Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Formaður Landssambands lögreglumanna sagðist í fréttum Stöðvar tvö í gær óttast að eftirgjöf á lífeyrisréttindum muni ekki skila sér í hækkun launa líkt og stefnt er að í samkomulaginu.

Hjúkrunarfræðingar taka undir þetta og gagnrýna ennfremur samráðsleysi við gerð samkomulagsins.

„En það eru greinilega margir sem halda að við séum í BHM. Við vorum það fyrir sjö árum en erum það ekki lengur. Í dag erum við með rúmlega tvö þúsund hjúkrunarfræðinga sem starfa á vegum ríkisins og það að við séum ekki í aðildarfélagi gefur ekki öðrum eða ríkinu rétt til þess að tala ekki við okkur um kjara-, launa- eða lífeyrismál,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir starfandi formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Hún segir að þeir sem skrifuðu undir samkomulagið í gær hafi ekki haft umboð frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

„Þannig að við lítum svo á að við séum ekki hluti af þessu samkomulagi,“ segir Guðbjörg.

Hjúkrunarfræðingar hafa óskað eftir fundi með fjármálaráðherra vegna málsins.

„Við erum með stærsta fagstéttarfélagið í heilbrigðisgeiranum. Þannig að það er mjög ankanalegt að við séum ekki höfð með í ráðum um eitthvað sem snertir okkar félagsmenn svona mikið,“ segir Guðbjörg. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×