Skoðun

Fleiri valkostir og aukið öryggi

Eygló Harðardóttir skrifar
Lög um almennar íbúðir voru samþykkt á vorþinginu. Með lögunum var komið á nýju félagslegu húsnæðiskerfi þar sem ríki og sveitarfélög munu veita 30 prósenta stofnframlög til fjölgunar leiguíbúða á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært að sjá sér fyrir húsnæði vegna félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda.

Í tengslum við kjarasamninga fyrir ári síðan var jafnframt lofað að fjölga almennum íbúðum um 2.300 á fjórum árum. Íbúðalánasjóður hefur unnið að undirbúningi úthlutunar stofnframlaga ríkisins og hefur þegar auglýst eftir fyrstu umsóknum.

ASÍ og BSRB hafa tekið ákvörðun um að stofna leigufélag á grunni laganna og áætla að afhenda eina nýja fullbúna blokk til útleigu í hverjum mánuði frá 2018. Viljayfirlýsingar um uppbyggingu 1.150 leiguíbúða hafa þegar verið undirritaðar við Reykjavík og Hafnarfjörð og er áætluð heildarfjárfesting á vegum félagsins um 27 milljarðar króna á næstu fjórum til sex árum. Fleiri sveitarfélög hafa sýnt verkefninu áhuga og leitað eftir samstarfi við verkalýðshreyfinguna. Fleiri aðilar eru að huga að uppbyggingu á leiguíbúðum og umsóknum um stofnframlög eða vaxtaniðurgreiðslu frá stjórnvöldum. Áætla má að byggðar verði námsmannaíbúðir á vegum Félagsstofnunar stúdenta, Byggingafélags námsmanna og Háskólans í Reykjavík fyrir allt að 15 milljarða króna á næstu 4-5 árum. Þá eru ótalin þau verkefni sem hagsmunasamtök fatlaðs fólks á borð við Landssamtökin Þroskahjálp, Brynju Hússjóð Öryrkjabandalagsins o.fl. standa fyrir. Auk þessa hafa sveitarfélögin sjálf skýrar lagaskyldur gagnvart fólki sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði vegna félagslegs vanda.

Nýtt húsnæðisbótakerfi mun styðja enn frekar við leigjendur en það tekur gildi um næstu áramót. Grunnbætur einstaklings verða 31.000 kr. á mánuði frá og með gildistöku laganna um næstu áramót eða 372.000 kr. á ári.

Með þessu stuðlum við að því að landsmenn hafi aukið val um búsetuform og búi við meira öryggi í húsnæðismálum í samræmi við þarfir hvers og eins.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×