Innlent

Guðmundur Franklín sækist eftir 4.-6.sæti

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Guðmundur Franklín Jónsson
Guðmundur Franklín Jónsson
Guðmundur Franklín Jónsson, hótelstjóri og fyrrverandi formaður Hægri grænna, gefur kost á sér í 4.-6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Guðmundur Franklín er með BSc próf í viðskipta- og hagfræði og meistarapróf í alþjóðastjórnmálum og hagfræði. Hann hefur starfað sem hótelstjóri á Hotel Klippen í Gudhjem á Borgundarhólmi í Danmörku frá árinu 2013.

„Ég verð alltaf talsmaður atvinnulífsins, lágra skatta og umhverfisverndar, en þessir málaflokkar hafa sjaldan verið eins mikilvægir og einmitt nú, þá sérstaklega ferðaþjónustunnar sem er að glíma við mikla vaxtarverki,“ segir í tilkynningu frá Guðmundi Franklín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×