Ringulreið í komusalnum á sunnudag: „Erum að elta skottið á okkur með þessar stækkanir“ Atli Ísleifsson skrifar 2. ágúst 2016 13:15 Guðni segir að starfsmenn hafi náð að koma tveimur af þremur færiböndum aftur í gang á fimm mínútum. Vísir/GVA „
Það er þannig að ef svona dettur niður í hálftíma, og nítján vélar lenda á vellinum á tveggja tíma tímabili, þá verður einhver seinkun og salurinn þétt setinn,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, aðspurður um það ástand sem skapaðist í komusal Keflavíkurflugvallar á sunnudagskvöld. Miklar tafir urðu í komusal flugstöðvarinnar eftir að færibönd biluðu og skapaðist talsverð ringulreið vegna þessa. Guðni segir að starfsmenn hafi náð að koma tveimur af þremur færiböndum aftur í gang á fimm mínútum. „Það þurfti hins vegar að kalla til viðgerðarmann vegna þriðja færibandsins. Hann kom á staðinn og var færibandið komið í lag á rétt rúmum hálftíma.“Kvartað vegna skorts á upplýsingumGuðni segir einhverja komufarþega hafa kvartað vegna skorts á upplýsingum vegna seinkunarinnar sem varð. Hann bendir á að flugþjónustuaðilar sjái um að setja töskurnar á bandið og eru með upplýsingaborðin í komusalnum. Isavia sjái hins vegar um að færiböndin virki sem skyldi. „Þetta [bilun í kerfinu] hefur komið upp nokkrum sinnum í sumar, álíka oft og þetta hefur komið í fjölmiðla og við erum búin að fylgjast vel með þessu. Við fundum reglulega með fulltrúum flugfélaga og flugafgreiðsluaðila um hvað megi gera til að bæta þetta. Sú vinna hefur gengið vel en svo koma svona atvik upp, smá bakslag. Við munum nú fara yfir upplýsingamál með flugfélögum og flugafgreiðsluaðilum,“ segir Guðni.Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.Mynd/IsaviaUm 3.500 farþegarGuðni segir að nítján flugvélar hafi lent á tímabilinu milli klukkan 23 og eitt eftir miðnætti á sunnudagskvöldinu, þegar bilunin varð. „Ef við gerum ráð fyrir 180 manns í hverri vél þá voru þarna um 3.500 manns sem voru að koma á þessum tíma. Ef það verður töf þá þéttist salurinn mikið.“Eltum skottið á okkurMest umferð á Keflavíkurflugvelli er að jafnaði á sunnudögum og má því segja að bilunin hafi komið upp á versta tíma. „Við sjáum að farþegum í júlí hefur fjölgað um 35 prósent, borið saman við sama mánuð í fyrra. Síðustu árin höfum við hins vegar verið að sjá sumaraukningu um 10 til 15 prósent og vetraraukningu 20 til 30 prósent.“ Hann segir að komusalurinn hafi nýverið verið stækkaður um tvö þúsund fermetra, eða um 30 prósent. „Við erum að elta skottið á okkur með þessar stækkanir. Það er nýverið búið að taka í notkun stækkun og aukningu á afköstum kerfisins. Það er samt viðkvæmt ástand á því þannig að þegar kemur upp bilun þá hefur það mikil áhrif á þessum álagstímum.“
Tengdar fréttir Erfiðlega gekk að afhenda farangur í Leifsstöð í nótt Tafirnar má rekja til uppsetningar á nýju farangurskerfi. 27. júní 2016 10:30 Flugferðamet slegið á Keflavíkurflugvelli í gær Met var slegið á Keflavíkurflugvelli í gær þegar 188 flugferðir voru farnar um flugvöllinn en farþegarnir voru þrjátíu og tvö þúsund. Talið er að tæpar sjö milljónir farþega fari um völlin á árinu sem nærri þrefalt meira en þegar mest var fyrir hrun. 11. júlí 2016 19:44 Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira
Erfiðlega gekk að afhenda farangur í Leifsstöð í nótt Tafirnar má rekja til uppsetningar á nýju farangurskerfi. 27. júní 2016 10:30
Flugferðamet slegið á Keflavíkurflugvelli í gær Met var slegið á Keflavíkurflugvelli í gær þegar 188 flugferðir voru farnar um flugvöllinn en farþegarnir voru þrjátíu og tvö þúsund. Talið er að tæpar sjö milljónir farþega fari um völlin á árinu sem nærri þrefalt meira en þegar mest var fyrir hrun. 11. júlí 2016 19:44