Björgunarsveit sinnti útkalli fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins Jóhann K. Jóhannsson skrifar 4. ágúst 2016 18:45
Ótti er meðal slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu við að geta ekki sinnt útköllum og verkefnum vegna þess niðurskurðar sem kom til framkvæmda fyrr í sumar, en í vikunni var björgunarsveit á Kjalarnesi fengin til þess að sinna bráðaútkalli fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 hefur fjallað um ákvað slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu að skera niður á vöktum slökkviliðsmanna í sumar, með því að fækka í mannskap á slökkvistöðinni við Skarhólabraut í Mosfellsbæ. Var það gert til þess að rétta rekstrarhalla slökkviliðsins af. Fréttastofan fékk upplýsingar um að Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafi ekki tekist að sinna forgangsútkalli síðastliðið þriðjudagskvöld vegna manneklu og annarra útkalla og að björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi hafi verið fenginn til þess að sinna útkallinu. Á sama tíma sinnti slökkviliðið stórri björgunaraðgerð við Reykjavíkurhöfn og annarri björgunaraðgerð utan þéttbýlis við Reykjavík. „Til stóð að senda sjúkrabíl, en hins vegar, að því það var svo mikið að gera og þegar að það kom í ljós að þarna var starfsmaður hjá slökkviliðinu sem mætti í útkallið á Kjalaranesi, ásamt því að það var búið að boða út lækni í Mosfellsbæ, þá er tekin sú ákvörðun að láta það klárast þannig og að björgunarsveitin myndi flytja viðkomandi sjúkling í bæinn. Við erum búnir að vera með samning við Björgunarsveitina Kjöl uppi á Kjalarnesi í mörg ár og þau mæta í öll forgangsútköll, ef það eru alvarleg tilfelli og það var á þriðjudagskvöldið líka þannig að þau voru boðuð sjálfkrafa líka eins og vinnureglur segja til um,“ segir Birgir Finnson, varaslökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Öllu jafna þegar álag er mikið á vöktum slökkviliðsmanna er kölluð út auka vakt til þess að manna viðbragðsþjónustu slökkviliðsins, en svo var ekki gert í þessu tilviki. „Jafnframt því sem við erum að sinna þessum tveimur stærri aðgerðum, þar sem við erum með mannfreka björgun untan alfararleiðar og þessu slysi í Reykjavíkurhöfn þá erum við að sinna fjórum sjúkraflutningum á sama tíma. Þannig að þó við hefðum hringt út mannskap, þá hefðum við ekki verið að leysa neitt. Það tekur alltaf ákveðinn tíma,“ segir Birgir.Er það þannig að sá niðurskurður sem kom til framkvæmda hér í sumar er ekki farinn að bitna á útköllum slökkviliðsins? „Sko, auðvitað er það þannig að það hafa komið oftar í sumar álagstoppar sem hafa aðeins ýtt á. En við höfum náð að spila úr því. Það er kannski bara þetta tilfelli sem þú nefnir þarna. En auðvitað er það þannig að eftir því sem við erum færri, þeim mun oftar munu slíkir toppar koma þar sem við þurfum aðeins að spila úr þjónustunni,“ segir Birgir
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira