Freyja Haralds: Spyr hvernig ófötluð leikkona geti haldið því fram að hún misskilji eigin reynslu Birgir Örn Steinarsson skrifar 5. ágúst 2016 18:22 Freyju blöskrar orð Eddu Björgvins sem sagði gagnrýni hennar á Sólheimum byggð á misskilningi og fáfræði. Vísir
Óhætt er að fullyrða að gagnrýni þeirra Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur sjónvarpskonu og Freyju Haraldsdóttur verkefnastýru samtaka fatlaðra kvenna á heimsókn forsetans til Sólheima hafi vakið upp hörð viðbrögð. Þær voru ósáttar við val forsetans fyrir fyrstu opinberu heimsókn hans af þeirri einu ástæðu að Sólheimar sé stofnun. Steinunn gagnrýndi fyrst heimsóknina á Facebook síðu sinni og sagði Sólheima vera stað þar sem fatlaðir væri „geymdir“. Freyja tók síðan upp hanskann fyrir hana en hún er mótfallinn því að fatlaðir séu vistaðir á stofnunum. Í viðtali við Vísi sagði hún ástæður þess vera að margir fatlaðir endi á stofnunum án þess að hafa neitt um það að segja og að rannsóknir sýni fram á að stofnanaumhverfi skapi kjöraðstæður fyrir ofbeldi í garð fatlaðra.Edda Björgvinsdóttir segir einnig í færstlu sinni gesti frekar koma til þess að skoða grænmetið en fatlaða fólkið.VísirRúmlega 100 manns tjáðu sig um málið í ummælakerfi Vísis og fóru margir ófögrum orðum um konurnar tvær sem báðar eru fatlaðar. Einnig tók leikkonan Edda Björgvinsdóttir upp hanskann fyrir Sólheima og sagði gagnrýni Steinunnar og Freyju byggða á misskilningi og fáfræði. Edda er fulltrúi í fulltrúaráði Sólheima og segir starfið þar bjóða upp á fjölbreytta og skapandi vinnu.Spyr hvort þær séu að misskilja eigin reynslu? Freyja brást við færslu leikkonunnar í dag og sagði Eddu aldrei hafa reynt fötlunar misrétti af eigin skinni. „[Edda] þarf ekki á hverjum einasta degi að búa við þann yfirvofandi ótta að verða fyrir fordómum, stimplun og öðru ofbeldi. Samt lætur hún það hvarfla að sér að segja okkur Steinunni vera misskilja okkar eigin reynslu og okkar eigin sögu." Hún líkir þessu við það að segja að konur misskilji kynjamisrétti eða að svart fólk misskilji rasisma.Undir áhrifum frá Maggie KuhnÁður hafði hún tjáð sig um þau fjölda neikvæðu ummæla sem fólk hafði skrifað í færslum á netinu eftir að viðtalið við hana birtist á Vísi. Þar sagði hún orð aktívistans Maggie Kuhn hafa mikil áhrif á sig en hún sagði; „Segðu hug þinn, þó að röddin skjálfi“. „Það er ljóst að fyrirmyndir eru mikilvægar til þess að hafa kraft til þess að sinnu þessu hlutverki sem fötlunar baráttan er. Ekki síður fólk sem sýnir (opinbera) samstöðu, einkum baráttusystur og fólk í nær- og fjærumhverfinu, og minnir þannig á að ástin og kærleikurinn er alltaf sterkari en andúðin og hatrið. Að lokum er það líka hvíldin. Hana er ég að reyna að tileinka mér, með misgóðum árangri, því hún er lífsnauðsynleg í þeim ólgusjó sem mannréttindabarátta er. Svo höldum við áfram.“
Tengdar fréttir Steinunn og Freyja gagnrýna heimsókn forseta til Sólheima „Fólk í valdastöðu á að vinna gegn aðskilnaðarstefnu og útskúfun, ekki upphefja hana og mæra,“ sagði Freyja í færslu á Facebook. 3. ágúst 2016 15:44 Framkvæmdastjóri Sólheima: „Tel mig vita að þeir sem hér búa, að þeim líður ágætlega“ Segist ósammála skoðunum Freyju Haraldsdóttur og Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur. 4. ágúst 2016 12:05 Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Sjá meira
Steinunn og Freyja gagnrýna heimsókn forseta til Sólheima „Fólk í valdastöðu á að vinna gegn aðskilnaðarstefnu og útskúfun, ekki upphefja hana og mæra,“ sagði Freyja í færslu á Facebook. 3. ágúst 2016 15:44
Framkvæmdastjóri Sólheima: „Tel mig vita að þeir sem hér búa, að þeim líður ágætlega“ Segist ósammála skoðunum Freyju Haraldsdóttur og Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur. 4. ágúst 2016 12:05