Henda eins litlu og mögulegt er Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 11. júlí 2016 07:00 Elísabet og Arndís Soffía í hótel Fljótshlíð láta matarsóun sig varða og gestir hrífast með.
Á hótel Fljótshlíð er lífrænn úrgangur vigtaður til að fylgjast með matarsóun. Þar er mikið lagt upp úr því að sóa minna og nýta allt hráefni betur. ,,Við getum gert mun meira en við höldum til að draga úr matarsóun í okkar daglega lífi,“segir Arndís Soffía Sigurðardóttir, eigandi hótelsins. „Fyrst þegar við hófum rekstur fór afskurður úr eldhúsi í ruslið en mjög fljótlega fórum við að halda öllum lífrænum úrgangi sér. Í dag vigtum við lífrænan úrgang úr eldhúsinu eftir hvern dag og niðurstaðan er sú að nú, á háannatíma, vegur lífrænn úrgangur í kringum 10 kíló á hverjum degi,“ segir Arndís Soffía frá. Umhverfisstjóri hótelsins, Elísabet Björney Lárusdóttir, segir mælinguna gott tæki til að fylgjast með. „Til að vita hvaða verðmæti maður er með í höndunum verðum við að vita hvað mikið fellur til af úrgangi frá degi til dags. Það gefur okkur líka tækifæri til að fylgjast með því hvort eitthvert viðbragð hjá okkur leiði til breytinga,“ segir Elísabet. Hluti af átakinu fólst í að gestir hótelsins voru fræddir um magn úrgangs deginum áður og hve margar manneskjur sú þyngd af mat gæti fætt. „Þetta hefur greinilega vakið gesti til umhugsunar þar sem þyngd lífræns úrgangs lækkaði við þetta um 1-2 kíló á hverjum degi,“ segir Elísabet. Margt fleira er gert til að draga úr magni lífræns úrgangs á hótelinu. „Við hendum ekki beinum eftir úrbeiningu, við búum til soð. Við hendum ekki berjum sem ekki eru nægilega falleg til skreytinga, við búum til sultu. Við hendum ekki afskurði af kartöflum, við steikjum kartöfluflögur o.s.frv. Það sem við getum ekki nýtt fellur hér til dýra, hænsna og grísa, auk þess sem við vinnum moltu til heimabrúks með lífrænum úrgangi,“ segir Elísabet. Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira