Styttist í skort á flug- mönnum með reynslu Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 11. júlí 2016 07:00 Rúmlega 400 flugmenn starfa hjá Icelandair í sumar og rúmlega 100 hjá Wow air. vísir/vilhelm
Þörf er fyrir 95 þúsund nýja flugmenn í Evrópu á næstu 16 árum. Alls er þörf fyrir yfir 560 þúsund nýja flugmenn um allan heim á tímabilinu, að því er viðskiptavefurinn e24.no hefur eftir félagi norskra flugmanna. Jafnframt kemur þar fram að hörð samkeppni sé fram undan um reynda flugmenn.Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi IcelandairGuðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að miðað við vöxt í farþega- og fraktflugi og að stórar kynslóðir flugmanna séu að fara á eftirlaun, hafi verið vitað um árabil að það stefndi í skort á flugmönnum í heiminum. „Á Íslandi hefur þessi skortur ekki komið fram enn þá en ljóst er að með vexti íslensku flugfélaganna er þörf á fleiri flugmönnum sem útskrifast úr flugskólunum. Þess sjást þegar merki að aðsókn að flugskólunum hefur aukist. Íslensku flugfélögin hafa jafnframt möguleika á því að ráða flugmenn innan Evrópusambandsins til starfa og alltaf er nokkur áhugi erlendra flugmanna á því að starfa á Íslandi,“ greinir Guðjón frá. Af fjórum flugskólum á Íslandi útskrifa tveir atvinnuflugmenn, það er Flugskóli Íslands og Flugakademía Keilis. Frá þeim útskrifast nokkrir tugir atvinnuflugmanna á ári. Að sögn Örnólfs Jónssonar, formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna, starfa rúmlega 400 flugmenn hjá Icelandair í sumar og rúmlega 100 hjá Wow air. „Það hefur náðst að manna flugvélarnar en það fer að styttast í að það verði skortur á flugmönnum,“ segir Örnólfur.Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira