Segir forsendur lokunar neyðarbrautar marklausar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 8. júlí 2016 07:00 Af Reykjavíkurflugvelli. vísir/gva
Sigurður Ingi Jónsson, varamaður Framsóknar og flugvallarvina í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar, segir gögn sem notuð voru við ákvarðanatöku um að loka NA/SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar ýmist úrelt, röng eða marklaus. Sigurður segir til að mynda að skýrsla Isavia um nothæfisstuðul fyrir sjúkraflugvélar á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli, þverbrjóta reglugerð um flugvelli. „Búinn er til einn lendingarstaður úr tveimur flugvöllum, Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli, síðan stuðst við hámarks hliðarvindsstuðul langt umfram það sem reglugerð segir til um,“ segir Sigurður. Þá gagnrýnir hann einnig skýrslur verkfræðistofunnar Eflu. „Efla verkfræðistofa hefur ríka fjárhagslega hagsmuni af viðskiptum við Reykjavíkurborg, einnig hefur komið fram að framkvæmdastjóri félagsins er hluthafi í Valsmönnum hf., því verður ekki fallist á að Efla verkfræðistofa sé óháður aðili,“ segir í bókun Sigurðar frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs. Sigurður segir að ítrekað hafi verið bent á galla í skýrslum Eflu og Isavia „af þar til bærum sérfræðingum, svo sem öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna“. Hann segir ábendingum þeirra hafa verið vísað frá með fullyrðingum um að atvinnuflugmenn séu hagsmunaaðilar. „Þetta er ákaflega grunnhyggin fullyrðing þar sem einu hagsmunirnir sem atvinnuflugmenn hafa í þessu máli er að koma sér og sínum farþegum örugglega á milli staða. Þeir sem hafa hag af því að knýja á um að loka brautinni, svo unnt sé að byggja blokkir í aðflugsstefnu brautarinnar, þeir eru hinir raunverulegu hagsmunaaðilar,“ segir Sigurður. Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Erlent Fleiri fréttir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Sjá meira