Stofnun múslima var trúfélag fyrir mistök Nadine Yaghi skrifar 9. júlí 2016 07:00 Yfirlýsing Reykjavíkurborgar er á ensku. vísir/skjáskot/stefán
Reykjavíkurborg sendi frá sér yfirlýsingu í nóvember á síðasta ári þess efnis að Stofnun múslima á Íslandi væri trúfélag. Það var gert fyrir mistök. Yfirlýsingin var dregin til baka með bréfi nú í lok júní. Bæði skjölin voru einnig undirrituð af starfsmönnum utanríkisráðuneytisins. „Yfirlýsingin var einfaldlega röng og þetta byggðist greinilega á misskilningi. Það hefur aldrei verið rétt að stofnunin sé skráð trúfélag eins og haldið var fram,“ segir Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi en hann þekkir vel til málsins. „Ég hef heyrt að stofnunin hafi notað þessa yfirlýsingu til að þiggja fjármuni en get þó alls ekki fullyrt það. Ef einhver hefur verið að þiggja fjármuni á röngum forsendum þá getum við ekki annað gert en leiðrétt það," segir Halldór og útskýrir að misskilningurinn hafi líklega byggst á því að Menningarsetur múslima hafi verið staðsett í húsnæði Stofnunarinnar þar til fyrir um mánuði. Trúfélög eru undanþegin fasteignaskatti samkvæmt lögum. Halldór segir stofnunina ekki hafa greitt gjöld af húsnæði sínu við Skógarhlíð en það hafi hins vegar ekki verið vegna yfirlýsingarinnar heldur vegna þess að Menningarsetur múslima hafi leigt húsnæðið þar til nú fyrir skömmu. Í dag greiði stofnunin hins vegar fasteignagjöldin eðli málsins samkvæmt þar sem trúfélag hafi ekki lengur starfsemi í húsinu. Karim Askari, framkvæmdastjóri Stofnunar múslima á Íslandi, segist ekki hafa fengið neina yfirlýsingu um það að mistök hafi orðið og stendur fast við það að stofnunin sé í raun trúfélag. Aðspurður hvort hann hafi notað skjalið til að fá fé að utan segir Karim svo ekki vera, en þekkt er að yfirvöld í Sádi-Arabíu styrki trúfélög múslima víða um heim. „Við vorum bara að nota þetta skjal til að sýna fólki hérna á Íslandi að við séum í raun trúfélag. Við erum trúfélag og höfum verið alveg frá byrjun,“ segir Karim og bætir við að stofnunin greiði ekki fasteignagjöld.
Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Fleiri fréttir Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Sjá meira