Íslensku búningarnir þrælstolnir Jakob Bjarnar skrifar 21. júní 2016 14:29 Búningarnir þeir sömu og stríðsfangarnir í Escape to Victory klæddust þegar þeir kepptu við nasistana.
Sláandi líkindi eru með búningi íslenska karlalandsliðsins á EM og svo þeim sem hinir fræknu stríðsfangar, sem dvöldust fangabúðum nasista í myndinni Escape to Victory, klæddust þegar þeir öttu kappi við kvalara sína í frægum leik. Hinir nýju íslensku búningar hafa verið nokkuð umdeildir og sitt sýnist hverjum. Um búningana hefur geisað býsna heit umræða og í umfjöllun Vísis fyrir skemmstu sagði Sindri Snær Jensson eigandi fataverslunarinnar Húrra að í hönnun hefði ýmislegt mátt betur fara. „Það sem ég furða mig mest á er tryggðin sem KSÍ heldur við Errea. Ég hef sjálfur notið þess vafasama heiðurs að klæðast Errea æfinga- og keppnisfatnaði. Þó merkið sé ítalskt og Ítalir smekklegir með yfirburðum þá eru einfaldlega önnur merki sem standa þeim framar í útliti, gæðum og hönnun. Ég hefði viljað sjá Ísland (stórasta land í heimi) fara “All-In” með Nike eða Adidas og hanna ógleymanlega treyju sem væri svo falleg að hún seldist í bílförmum,“ sagði Sindri Snær. Nú er sem sagt komið á daginn að hönnun búninganna er ekki úr lausu lofti gripin. Það er Erik Hirt sem hefur svona glöggt myndrænt minni og vekur athygli á þessu á sinni Facebooksíðu: „Nei sko, vissi að ég hefði séð þessa búninga áður.“ Aldrei þykja góðar tvíbökur að bísa hönnun en fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Hér er ekki leiðum að líkjast. Því í liði fanganna sem sýndu svo frækna frammistöðu í téðum leik (og hér hættum við að gera greinarmun á raunveruleika og tilbúningi myndarinnar) eru nefnilega engir aukvisar. Í markinu stóð sjálfur Sylvester Stallone og svo voru aðrar kempur á borð við Pelé, Bobby Morre og Osvaldo Ardiles – þeirra tíma hetjur. Enda, fengu nasistarnir það óþvegið á knattspyrnuvellinum.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira