Innlent

Innritun í framhaldsskóla: 90 prósent nemenda fengu skólavist í fyrsta vali

Atli ísleifsson skrifar
Flestir umsækjenda settu Verzlunarskóla Íslands í fyrsta sæti, líkt og undanfarin ár.
Flestir umsækjenda settu Verzlunarskóla Íslands í fyrsta sæti, líkt og undanfarin ár. Vísir/Vilhelm
Níutíu nemenda fengu skólavist í þeim skóla sem þeir völdu sem fyrsta val en innritun nýnema í framhaldsskóla á haustönn 2016 er nú lokið.

Í frétt á vef menntamálaráðuneytisins kemur fram að alls hafi 4.139 umsóknir borist.

90 prósent fengu skólavist í þeim skóla sem þeir völdu sem fyrsta val og níu prósent nemenda í þeim sem þeir völdu númer tvö.

„Eitt prósent nemenda fengu ekki skólavist í þeim skólum sem þeir völdu og var þeim því fundin skólavist í öðrum skólum. Til samanburðar má geta þess að á haustönn 2015 fengu 86% nemenda skólavist í fyrsta vali, 12% í öðru vali og 2% nemenda var fundin skólavist í þriðja skóla. Hlutfall þeirra sem fengu inni í sínu fyrsta vali hefur aldrei verið hærra en nú,“ segir í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×