Innlent

Kvennó, MS og Verzló vinsælastir

Bjarki Ármannsson skrifar
Flestir umsækjenda settu Verzlunarskóla Íslands í fyrsta sæti, líkt og undanfarin ár.
Flestir umsækjenda settu Verzlunarskóla Íslands í fyrsta sæti, líkt og undanfarin ár. Vísir/Vilhelm
Kvennaskólanum í Reykjavík bárust flestar umsóknir um framhaldsskólavist þetta vorið, sé litið til þeirra sem settu skólann í fyrsta eða annað val. Flestir settu þó Verzlunarskóla Íslands í fyrsta sæti, líkt og undanfarin ár.

Alls sóttu 4139 nemendur um skólavist og er sundurliðun á fjölda umsókna í fyrsta og annað val birt á Facebook-síðu Menntamálastofnunar í dag.

Samtals sóttu 605 nemendur um skólavist í Kvennaskólanum í fyrsta og annað val en laus pláss eru aðeins 225. Skólinn er einn margra, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni, sem fengu mun fleiri umsóknir en sem nemur skólaplássum í boði.

Sundurliðun á fjölda umsókna í fimm vinsælustu framhaldsskólunum má sjá hér að neðan.

Bæði Verzlunarskólanum og Menntaskólanum við Sund bárust 602 umsóknir í fyrsta og annað val. Næst á eftir fylgir Tækniskólinn, þar sem 578 sóttu um í fyrsta og annað val. 

Verzlunarskólanum og Tækniskólanum bárust flestar umsóknir allra skóla í fyrsta val, 445 í Verzló og 301 í Tækniskólann.


Tengdar fréttir

Tíundu bekkingar áhyggjufullir: „Ég veit hvernig ég útskrifast úr grunnskóla en hef ekki hugmynd um hvernig ég kemst inn í framhaldsskóla“

Þau Tristan Elvuson, Viktor Andrason, Embla Óðinsdóttir og Elfa Hlynsdóttir eru nemendur í 10. bekk í Réttarholtsskóla og hafa öll fengið fræðslu um fyrirkomulag námsmats í ár. Þau vita því hvernig þau útskrifast úr grunnskóla en ekki hvernig þau komast inn í framhaldsskóla og eru sum hrædd um að mistakast í hæfnisprófi.

Hæfnispróf tekin upp í framhaldsskólum

Framhaldsskólum verður ekki heimilt að nýta niðurstöður samræmdra prófa vegna innritunar næsta vor. Í undirbúningi eru viðamiklar breytingar á námsmati í grunnskólum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×