Læknum hefur fjölgað úr þremur í tíu í Grafarvogi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. júní 2016 10:15 "Við höfum afrekað heilmikið en erum í miðri ánni,“ segir Ófeigur Tryggvi og segir frekari breytingar bíða þar til eftir sumarfrí. Vísir/Hanna
Við erum að byggja upp öfluga teymisvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga hér á stöðinni. Líka samstarf við heimahjúkrun og að skoða læknisþjónustu við fatlaða og Landspítalann, þar með talda bráðamóttökuna til að létta á henni,“ segir Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, sem er bæði svæðisstjóri og fagstjóri lækninga á heilsugæslustöðinni í Grafarvogi. Teymin eru fjögur, tveir læknar, tveir hjúkrunarfræðingar og ljósmóðir í hverju – reyndar með mismunandi starfshlutfall. Teymin sjá um ákveðinn fjölda íbúa Grafarvogs, hvert og eitt 2-3.000 manns, að sögn Ófeigs Tryggva. „Fjöldi fólks í hverfinu hefur ekki haft heimilislækni síðustu ár en nú eru 11.000 komnir á skrá hjá teymum heilsugæslunnar og fólk fær ekki bara lækni heldur líka hjúkrunarfræðing og hefur því betra aðgengi að þjónustunni en áður. Hjúkrunarfræðingar geta leyst úr svo mörgum þeirra mála sem fólk leitar til læknis með, meðal annars sem varða eftirfylgni vegna krónískra vandamála. En læknirinn er alltaf nálægt, því hann starfar á sama stað í húsinu,“ segir Ófeigur Tryggvi og lýsir fleiri nýjungum. „Við höfum líka greint sjúklingahópinn, hversu margir eru með sykursýki, háan blóðþrýsting, þunglyndi og kvíða, hvað margir þurfi ung-og smábarnavernd og hver aldurssamsetning sjúklingahóps hvers teymis er. Þannig getum við miðað þjónustuna betur við stóru viðfangsefnin og búið til frið fyrir hvert teymi til að sinna sínum hópi. Hingað til hefur hver læknir verið skráður fyrir stórum hópi skjólstæðinga og oft hefur orðið alltof löng bið að honum. Hér var hún hátt í mánuður á tímabili. Okkur hefur tekist að snúa þeirri þróun við og erum komin niður í sex daga, samkvæmt nýlegri könnun.“ Ófeigur Tryggvi kom að heilsugæslustöðinni í Grafarvogi 1. október á síðasta ári og nýju læknarnir koma víða að, meðal annars frá Nýja-Sjálandi og Svíþjóð. Nýja vinnumódelið er erlent að uppruna og áhrifaríkt. „Ég hef kannski talað mikið um þetta módel en framkvæmdin er starfsfólksins, og svo náttúrlega með stuðningi forstjóra heilsugæslunnar. Við höfum afrekað heilmikið en erum í miðri ánni. Við höfum hætt að vinna hvert í sínu horni en tekið höndum saman til að byggja upp aðgengilega og öfluga þjónustu, ekki síst við þá sem hafa langvinna sjúkdóma sem hrjá Íslendinga.“ Heilsugæslustöðin í Grafarvogi er rekin af ríkinu. Ófeigur Tryggvi segir það ekki hafa neikvæð áhrif á nýja fyrirkomulagið. „Það er auðvitað töluverð viðhorfsbreyting fyrir lækna innan heilsugæslunnar að fara allt í einu að deila verkefnum sem þeir hafa einir sinnt í áraraðir og afhenda þau öðrum. En þetta er nýsköpun sem við sameinumst um. Við höfum leitað jafnvægis og þó enn sé eftir að slípa eitt og annað held ég að enginn vilji fara til baka. Fyrirkomulag teymisvinnunnar er nýjung í opinberu heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu en úti á landi hafa læknar og hjúkrunarfræðingar unnið saman í fullu trausti og deilt verkefnum.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 11. júní 2016.
Mest lesið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Tónlist Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira