Flæddi yfir gröfu sem notuð var til að draga Jón Hákon á land Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 18. júní 2016 22:36 Á fyrri myndinni leikur allt í lyndi, á seinni myndinni er grafan komin á bólakaf. Vísir/Stefán Dan Óskarsson
Dragnótarbáturinn Jón Hákon sem sökk síðastliðið sumar hefur verið dreginn í fjöru á Ísafirði. Það var gert í dag. Aðgerðirnar gengu vel þangað til stærðarinnar grafa sem notuð var í aðgerðunum bilaði. Grafan drap því á sér og svo flæddi yfir hana þegar kom flóð. Skjótt getur skipst á milli flóðs og fjöru í fjöruborðinu en þegar aðgerðir hófust var fjara.Menn eru bjartsýnir á að takist að gera við gröfuna.Vísir/Stefán Dan ÓskarssonÞetta kom þó ekki að sök og er Jón Hákon nú vel skorðaður í fjörunni. Þegar Vísir náði tali af Jóni Árelíusi Ingólfssyni, rannsóknarstjóra hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, í kvöld var hann á leið heim af vettvangi. „Báturinn er kominn á öruggan stað en það þarf að koma honum ofar til að geta unnið í honum. Við erum bara í þægilegu spennufalli að báturinn sé kominn á sinn stað.“ Báturinn sökk í Ísafjarðardjúpi síðastliðið sumar og fórst einn maður úr áhöfninni. Báturinn verður rannsakaður þegar tekst loks að koma honum á land en varðskipið Þór hefur í vikunni unnið að því að koma bátnum til Ísafjarðar. Í gær var dælt upp úr honum sjó svo hægt væri að draga hann á land í dag. Lögreglan á Ísafirði segir að nú sé verið að bíða eftir að fjari svo hægt sé að gera við gröfuna. Búist er við því að það verði þó ekki fyrr en á morgun. Samkvæmt lögreglu voru menn á vettvangi bjartsýnir á að grafan sé ekki ónýt þó að flætt hafi inn í hana.Grafan bilaði.Vísir/Stefán DanGrafan í fjöru áður en flæddi yfir hana.Vísir/HafþórFrá aðgerðum í dag.Vísir/HafþórFrá aðgerðum í dag.Vísir/Hafþór
Tengdar fréttir Jón Hákon dreginn á land í dag Rannsóknarstjóri hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir aðgerðirnar hafa gengið vonum framar. 18. júní 2016 14:20 Jón Hákon á þurrt um næstu helgi Aðgerðir við að sækja Jón Hákon BA 60 af hafsbotni eru í fullum gangi. Reiknað er með að báturinn komist á flot um næstu helgi takist allt vel. 13. júní 2016 19:29 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Fleiri fréttir Formaður Kennarasambandsins segi ósatt Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira
Jón Hákon dreginn á land í dag Rannsóknarstjóri hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir aðgerðirnar hafa gengið vonum framar. 18. júní 2016 14:20
Jón Hákon á þurrt um næstu helgi Aðgerðir við að sækja Jón Hákon BA 60 af hafsbotni eru í fullum gangi. Reiknað er með að báturinn komist á flot um næstu helgi takist allt vel. 13. júní 2016 19:29