Byggja upp grjótgarða undir yfirborðinu Svavar Hávarðsson skrifar 2. júní 2016 07:00 Í ágúst 2009 var talið að jakarnir gætu skemmt brúna yfir Jökulsá. Mynd/Vegagerðin
Unnið er að því þessa dagana að styrkja varnargarða í útfalli Jökulsár á Breiðamerkursandi skammt fyrir ofan brúna. Garðarnir eru ekki sýnilegir, en framkvæmdirnar hafa vakið athygli þar sem stórvirkar vinnuvélar hafa myndað bryggju til að koma efni á sinn stað. Grjótþröskuldi var komið fyrir innan við brúna á sínum tíma í þeim tilgangi að stórir jakar strandi þar fyrir innan og haldist í lóninu. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að stórir jakar skemmi brúna. Árið 2006 var bætt í þröskuldinn en árið 2009 sýndu mælingar að hann hafði lækkað um fjóra metra á þremur árum. Í stórsteymi í ágúst það ár komust stórir jakar yfir þröskuldinn og að brúnni. Var mat Vegagerðarinnar á þeim tíma að illa hefði getað farið og var strax í júní árið eftir ráðist í að byggja garðinn upp, líkt og nú. Þess má geta að á þeim tíma var óvíst um framkvæmdir vegna efnahagsástandsins en ekki þótti réttlætanlegt að bíða.Framkvæmdum líkur um miðjan júní.Mynd/livefromiceland.isVerkefnið er í höndum Vegagerðarinnar og ástæðan fyrir því að mannvirkin eru sýnileg nú er að ekki er öðruvísi hægt að gera vinnuvélum kleift að koma grjóti í grjótþröskuldinn þetta langt úti í lóninu. „Það er verið að bæta grjóti ofan á einn af þröskuldunum sem eru í Jökulsánni. Þessi þröskuldur er ofan brúarinnar og tilgangur hans er að varna því að árbotninn grafist og einnig að að verja brúna fyrir stórum ísjökum sem annars gætu borist úr lóninu. Það er búið öðrum megin en verður fljótlega byrjað hinum megin, á allra næstu dögum, þessi þröskuldur verður þannig að hann sést ekkert, frekar en verið hefur, og þegar framkvæmdum lýkur verður hann þremur metrum fyrir neðan yfirborðið,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar. Hann reiknar með að verkinu ljúki um miðjan mánuðinn og þá verður sýnilegur hluti mannvirkjanna fjarlægður. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira