Landsnet þarf að veita aðgang að gögnum Sveinn Arnarsson skrifar 2. júní 2016 07:00 Háslpennulínur í Skriðdal. Mynd/Sigurður Arnarsson
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur gefið út þann úrskurð að Landsneti sé skylt að veita Landvernd, samtökum um náttúruvernd, aðgang að skýrslu sem samin var fyrir fyrirtækið um háspennulínur í jörðu. Landvernd krafðist þess í apríl í fyrra að fá aðgang að skýrslunni. Íslensk útgáfa skýrslunnar hafði verið birt á vef Landsnets. Hins vegar hafði ensku útgáfunni verið haldið leyndri fyrir almenningi. Sú skýrsla mun hafa verið mun ítarlegri og fræðilegri en sú íslenska og vildi Landvernd kynna sér efni skýrslunnar betur. Landsnet féllst ekki á að veita Landvernd afrit af skýrslunni. Taldi Landsnet að í skýrslunni væri að finna upplýsingar er vörðuðu mikilvæga hagsmuni fyrirtækisins, því væri þeim óheimilt að veita almenningi aðgang að þeim upplýsingum. Einnig taldi Landsnet að þessi umrædda skýrsla væri ekki opinbert gagn heldur vinnugagn stofnunarinnar. Forsvarsmenn Landverndar telja þetta leynimakk hvorki gott fyrir náttúruvernd í landinu né fyrir fyrirtækið sjálft því leyndin tefji uppbyggingu raforkukerfisins. „Fyrir nokkrum árum neitaði Landsnet að umhverfismeta árlega raflínuáætlun sína, kerfisáætlunina.Guðmundur Ingi GuðbrandssonÁkvörðun umhverfisráðherra þurfti til að breyta því. Fyrirtækið hefur ítrekað neitað að umhverfismeta jarðstrengi þvert á lagaskyldur. Skipulagsstofnun, úrskurðanefnd umhverfismála og nú síðast Hæstiréttur hafa staðfest þetta, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar. „Ofan á þetta bætist svo leyndarhyggja með gögn, samanber þetta mál og hin fræga kostnaðaráætlun fyrir jarðstrengi við Blöndulínu 3 sem reyndist týnd. Þessi jarðstrengjafælni Landsnets og vinnubrögð fyrirtækisins eru í mikilli andstöðu við náttúruvernd og vilja heimamanna. Þetta verður að breytast, nema fyrirtækið vilji áfram tefja eigin framkvæmdir í raforkukerfinu.“ Mikil átök eiga sér nú stað um uppbyggingu raforkukerfis Landsnets. Víða er uppi hávær krafa um að æ stærri hluti flutningskerfisins verði lagður í jörðu en Landsnet hefur iðulega talið það óraunhæft og of kostnaðarsamt. Hins vegar hafa náttúruverndarsamtök og heimamenn ekki fallist á þau rök Landsnets. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin velur sér borgarstjóraefni Innlent Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Innlent Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin velur sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Sjá meira