Fótbolti

Heimir: Óvissan er stærsta hindrunin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Heimir og Lars á varamannabekknum í Laugardal í kvöld. Þeirra síðustu móment saman á bekknum verða í Frakklandi.
Heimir og Lars á varamannabekknum í Laugardal í kvöld. Þeirra síðustu móment saman á bekknum verða í Frakklandi. Vísir/Eyþór
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck sátu fyrir svörum á sínum síðasta blaðamannafundi á Laugardalsvelli eftir 4-0 sigurinn gegn Liechtenstein í kvöld. Lars hafði orð á því að fyrsta korterið hefði valdið honum áhyggjum en svo hefði birt til. Heilt yfir væri hann ánægður með það sem liðið fékk út úr leikjunum tveimur gegn Noregi (3-2 tap) og gegn Liechtenstein í kvöld.

Heimir lagði áherslu á að markatalan í kvöld skipti ekki máli. 

„Strákarnir voru klárir og spiluðu á háu tempói þótt leikurinn væri búinn í hálfleik. Við fengum góðan leik út úr þessu,“ sagði Eyjamaðurinn. Heimir sagði það besta við leikinn hafa verið þá taktísku hluti sem lagðir voru upp fyrir leikinn sem heppnuðust vel. Það stæði upp úr eftir tapið í Noregi þar sem nokkur gildi landsliðsins hefðu ekki verið höfð í heiðri.

„Við stigum upp og leikmennirnir sýndu gott viðhorf í 90 mínútur,“ sagði Heimir. Nokkrum sinnum hefði örlað á einbeitingarleysi en erfitt gæti verið að halda einbeitingu í svona leik. Gildi liðsins hefðu verið 100% í heiðri í þessum leik.

Lars var spurður út í undirbúninginn í heild sinni en hann hefur marga fjöruna sopið, þrautreyndur eftir að hafa farið endurtekið með sænska landsliðið í lokakeppni stóramóta.

„Undirbúningurinn hefur ekki verið fullkominn enda komu margir leikmenn viku á eftir hinum og sumir hafa ekki spilað lengi,“ sagði Lars. Þeir hefðu þurft að búa til plan sem hefði gengið vel. Aron Einar og Kolbeinn, sem hefðu glímt við meiðsli, væru að spila og nú væru allir mjög sáttir þegar átta dagar væru til leiksins gegn Portúgal.

Varðandi undirbúning og allt það sem gengur á bak við tjöldin, bónusgreiðslur leikmanna og annað, sagði Heimir„allt vera frágengið“ og sló svo á létta strengi. Eini maðurinn sem væri ekki tilbúinn væri Sigurður Þórðarson liðsstjóri. „Hann mun stíga upp,“ sagði Heimir í gríni.

Þjálfararnir voru spurðir að því hver væri stærsta hindrun liðsins fyrir EM í Frakklandi. Lars sagði þá Heimi nokkurn veginn vera búnir að velja byrjunarliðið fyrir Portúgalsleikinn en þó gæti svo margt gerst að það væri ekkert öruggt. 

„Við Heimir höfum plan og höfum auðvitað greint Portúgal. Nú snýst þetta um hefðbundnar fótboltaæfingar. Við vinnum ekki mikið í forminu þegar svo stutt er í mótið. Við höfum fimm æfingar og fjórar þeirra verða með fókusinn á Portúgalsleiknum,“ sagði Lars. Þeir Heimir væru auðvitað að horfa lengra fram í tímann en leikmenn myndu aðeins einbeita sér að leiknum þann 14. júní.

„Við höfum aldrei gert þetta áður,“ sagði Heimir um hver mesta hindrunin væri en benti svo á Lars: „Hann hefur gert þetta áður,“ sagði Heimir og Lars sagði honum í léttum tóni að halda kúlinu. 

„Við vitum ekki hvað mun gerast. Það er líklega stærsta hindrunin,“ bætti tannlæknirinn við. Aðspurður sagði hann að sjálfum liði honum nokkuð vel í aðdraganda keppninnar.

„Ég veit ekki hvað mun gerast en við munum reyna að njóta þess.“

 


Tengdar fréttir

Alfreð: Elska að skora mörk

Alfreð Finnbogason skoraði sitt áttunda landsliðsmark þegar Ísland vann öruggan 4-0 sigur á Liechtenstein í síðasta vináttulandsleik íslenska liðsins áður en það heldur til Frakklands á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×