Lífið

Davíð leyfir áhugasömum að skyggnast bakvið tjöldin í baráttunni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Davíð Oddsson hefur mælst með um 20 prósentustiga stuðning að undanförnu.
Davíð Oddsson hefur mælst með um 20 prósentustiga stuðning að undanförnu. vísir/ernir
Forsetaframbjóðendurnir níu munu á næstu dögum sjá um Snapchat-reikning kvöldfrétta Stöðvar 2. Þar munu þeir leyfa áhorfendum að skyggnast á bakvið tjöldin í baráttunni um Bessastaði og til að fylgjast með ævintýrum þeirra þarf einungis að bæta við reikningnum stod2frettir á Snapchat.

Sá sem fer með tögl og hagldir í dag er Davíð Oddsson sem hefur mælst með um 20 prósentustiga stuðning að undanförnu. Að sögn talsmanna Davíðs mun hann vera á fleygiferð í allan dag og byrjar daginn á vinnustaðaheimsókn í hádeginu.

Sjá einnig: Fylgstu með degi í lífi forsetaframbjóðendanna á Snapchat

Fleiri forsetaframbjóðendur munu fylgja í kjölfar Davíðs og geta áhugasamir fylgst með ævintýrum þeirra með því að bæta við Snapchat-reikningnum stod2frettir eins og fyrr segir.

Frambjóðendunum 9 hefur verið boðið að nýta sér aðgang fréttastofunnar. Með því að kveikja á Snapchat og beina myndavélinni að gula reitnum geturðu bætt við Kvöldfréttum Stöðvar 2 með einföldum hætti.vísir

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×