Innlent

Benedikt fylgir Sigurði Inga í forsætisráðuneytið

Bjarki Ármannsson skrifar
Benedikt starfaði lengst af sem fréttamaður á fréttastofu RÚV.
Benedikt starfaði lengst af sem fréttamaður á fréttastofu RÚV. Mynd/Forsætisráðuneytið
Benedikt Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar, nýs forsætisráðherra, og fylgir Sigurði Inga þannig úr atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Benedikt hefur einnig gegnt starfi aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og starfi fjölmiðlafulltrúa Kaupþings. Lengst af starfaði hann þó sem fréttamaður á fréttastofu RÚV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×