Byggingarmagn eykst um 73 prósent milli ára Óli Kristján Ármannsson skrifar 1. apríl 2016 07:00 Hljómalindarreitur Laugavegur Hverfisgata byggingar byggingaframkvæmdir Hótel.
Í fermetrum talið var samþykkt bygging á ellefu sinnum meira magni íbúðarhúsnæðis en hótelbygginga í Reykjavík á síðasta ári. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýútkominni ársskýrslu Byggingarfulltrúans í Reykjavík fyrir árið 2015. Eins má lesa úr gögnum Byggingarfulltrúa að frá árinu 1972 sé síðasta ár í fjórða sæti hvað varðar fjölda íbúða sem hafin hafi verið bygging á á árinu. Einungis voru fleiri íbúðir í byggingu árin 2005, 1986 og 1973.„Á árinu 2015 var hafin smíði á 926 nýjum íbúðum. Að jafnaði frá árinu 1972 var hafin smíði á 609 íbúðum á ári,“ segir í skýrslunni, en þegar þær voru flestar 1973 var hafin smíði á 1.133 íbúðum. „Fæstar voru þær yfir árin 2009 til 2011 þar sem hafin var smíði á 159 íbúðum árið 2009, einungis 10 íbúðum árið 2010 og 113 árið 2011.“ Að sögn Byggingarfulltrúa er á síðasta ári um að ræða töluverða aukningu í byggingu nýrra íbúða frá síðastliðnum árum. „Samþykkt byggingarmagn í byggingaráformum í Reykjavík á árinu 2015 var fyrir um 235 þúsund fermetra og 912 þúsund rúmmetra fyrir allt húsnæði.“ Fram kemur að byggingaráform íbúðarhúsnæðis hafi verið um 64 prósent alls byggingarmagns. „Til samanburðar var samþykkt byggingmagn árið 2014 fyrir um 136 þúsund fermetra og 531 þúsund rúmmetra fyrir allt húsnæði. Aukning á samþykktu byggingarmagni á milli ára var um 73 prósent eða nærri tvöföld aukning og margföld ef miðað er við árið 2010 þegar einungis um 18 þúsund fermetrar og 68 þúsund rúmmetrar voru samþykktir.“ Samþykkt byggingarmagn árið 2015 er sagt nærri sambærilegt og það hafi verið yfir árin 2000 til 2008 þegar að jafnaði um 265 þúsund fermetrar og 1.270 þúsund rúmmetrar voru samþykktir. Fram kemur í ársskýrslunni að á síðasta ári hafi verið samþykkt byggingaráform fyrir 969 nýjar íbúðir. Af þeim eru 926 í fjölbýlishúsum, þar af 102 stúdentaíbúðir. Síðan er 30 í raðhúsum, sex í tvíbýlishúsum og sjö í einbýlishúsum. „Til samanburðar voru 562 nýjar íbúðir samþykktar árið 2014, 441 árið 2013, 444 árið 2012, 114 árið 2011, 27 árið 2010, 125 árið 2009, 490 árið 2008, 427 árið 2007 og 573 íbúðir skráðar árið 2006,“ segir í skýrslu Byggingarfulltrúa.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. apríl.
Mest lesið Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Umbóta þörf til að halda uppi lífsgæðum á Íslandi að mati OECD Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira