Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu

Í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálfsjö verður rætt við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar sem segir að verkefnisstjórn um rammááætlun hafi virt að vettugi efnahagsleg áhrif virkjana í nýjum tillögudrögum en lögin um rammaáætlun kveða á um að lagt skuli mat á efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg áhrif.

Í fréttatímanum fjöllum við einnig um þá staðreynd að það er miklu dýrara fyrir ferðamenn að kaupa sér mat, gistingu og þjónustu en á örðum vinsælum ferðamannastöðum og sumir hafa áhyggjur af því að Íslendingar séu að verðleggja sig af markaði.

Við fjöllum einnig um fjörutíu ára Apple fyrirtækisins og ræðum við íslenskan Apple sérfræðing sem lætur sér ekki duga að nota vörurnar sem hann elskar því hann á líka hlutabréf í Apple.

Fréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö, sem og hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×