Innlent

Blindir renndu sér á skíðum í Skálafelli

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Það var líf og fjör í Skálafelli í dag þar sem blind og sjónskert börn skíðuðu niður brekkurnar með aðstoð kennara. Þau létu litla reynslu ekki stoppa sig og nutu hraðans sem fylgir skíðunum.

Tíu ungmenni á aldrinum 11 til 22 ára voru í hópnum en ferðin var á vegum Blindrafélagsins. „Þetta byggist aðallega bara á því að treysta þjálfaranum og það bara gengur allavega hjá mér bara mjög vel,“ segir Már Gunnarsson einn af þeim sem var með í dag. Már, sem er fjórtán ára, hefur aðeins tvisvar sinnum áður farið á skíði og naut hann þess sérstaklega hversu hratt hann fer yfir á skíðunum.

Jón Norðkvist skíðakennari segir kennslu sem þessa snúast fyrst og fremst um traust. Hann skíðaði fyrir aftan Má í dag og notaði fjögur orð til að hjálpa honum niður það eru hægri, vinstri, rennsli og stopp. Nokkur þoka var á svæðinu í dag og leist kennurunum ekki á blikuna þegar upp var komið þar sem þeir sáu lítið frá sér. Már kunni þó svör við því og sagðist geta hjálpað þeim niður þar sem hann þekkir slíkt vel. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×