Innlent

Á annað hundrað sjúklingar í lyfjameðferð við lifrarbólgu C

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Á annað hundrað sjúklingar eru þessa dagana í lyfjameðferð gegn lifrarbólgu C á Landspítalanum og á sjúkrahúsinu Vogi. Sérstakur skanni hefur verið tekinn í notkun í tengslum við meðferðirnar.

Um er að ræða samstarfsverkefni íslenskra heilbrigðisyfirvalda og lyfjafyrirtækisins Gilead sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu C á Íslandi. „Við settum okkur í upphafi það markmið að bjóða um tvö hundruð sjúklingum meðferð á fjögurra mánaða tímabili. Við fórum af stað í byrjun febrúar og það hafa þegar komið til okkar 220 sjúklingar í viðtöl og í skoðun og um 140 einstaklingar þegar byrjaðir í lyfjameðferð,“ segir Sigurður Ólafsson meltingar- og lifrarlæknir og umsjónarlæknir verkefnisins.

Það er starfsfólk bæði á Landspítalanum og á sjúkrahúsinu Vogi sem kemur að verkefninu. Talið er að átta hundruð til eitt þúsund manns séu smitaðir af lifrarbólgu C hér á landi og er vonast til að ná til allra sem eru með sjúkdóminn.

Sérstakur bandvefsskanni er notaður til að skoða lifur þeirra sem eru með sjúkdóminn. „Þetta er nýtt tæki sem að við höfum tekið í notkun í tengslum við þetta meðferðarátak sem gerir okkur kleift að meta lifrarskemmdir á óþægindalausan hátt. Þetta kemur í staðin fyrir það sem við þurftum að gera áður það er að taka stungusýni úr lifrinni,“ segir Sigurður.

Lyfjameðferðin tekur yfirleitt um tólf vikur en hún getur þó tekið allt upp í 24 vikur. Meðferðin stöðvar framrás sjúkdómsins og getur jafnvel orðið til þess lifrarskemmdir ganga til baka. Átakið er einstakt á heimsvísu og segir Sigurður það hafa vakið mikla athygli. Hann segir marga bíða spennta eftir að sjá árangurinn. „Við vonumst til þess að útrýma honum en hvort að það takist það verður tíminn að leiða í ljós,“ segir Sigurður og að verkefninu eigi að ljúka á þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×