Lögreglan leitar vitna vegna líkamsárásar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. mars 2016 16:15 Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn hafi sá sem fyrir árásinni varð legið meðvitundarlaus á gangstétt. Vísir/Stefán
Lögreglan á Selfossi leitar vitna vegna líkamsárásar fyrir utan skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi aðfaranótt mánudags en skömmu eftir klukkan þrjú um nóttina barst lögreglunni tilkynning um yfirstandandi slagsmál fyrir utan staðinn. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn hafi sá sem fyrir árásinni varð legið meðvitundarlaus á gangstétt. Aðdragandi árásarinnar er ekki að fullu ljós en vísbendingar voru um að tveir menn hefðu ráðist á manninn, komið honum í jörðina og síðan sparkað í höfuð hans. Lögreglan biður alla þá sem vitni urðu að aðdraganda árásarinnar eða árásinni sjálfri, eða jafnvel hafa tekið atvikið upp á myndsíma, að gefa sig fram við lögreglu í síma 444-2010 eða í tölvupósti sudurland@logreglan.is. Maðurinn sem fyrir árásinni varð var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi þar sem sár á höfði hans var saumað. Hann komst til meðvitundar og ekki kom til innlagnar. Meintir árásarmenn voru handteknir og færðir í fangageymslu. Eftir yfirheyrslur voru þeir látnir laus og hafa nokkur vitni verið yfirheyrð. Árásin er í rannsókn.Líkamsárás við Hvítahúsið á Selfossi, lögreglan leitar vitna. Skömmu eftir klukkan þrjú aðfaranótt mánudags barst lö...Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Wednesday, 30 March 2016
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira